Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum tveimur árum. mbl.is greinir fyrst frá.
Ákvörðunin var tekin að loknu áhættumati verkfræðistofunnar COWI. Matið fól þó í sér tillögur að aðgerð sem lögregluembættið þurfti að meta sjálfstætt.
„Nú hefur það verið framkvæmt og niðurstaða þess mats er sú að við teljum þetta mögulegt að því gefnu að það sé farið í tilteknar mótvægisaðgerðir til að tryggja sem best öryggi á vettvangi,“ segir Margrét Kristín.
Mótvægisaðgerðirnar snúa meðal annars að því að bæta aðgengi að sprungunni með því að stækka op hennar. Margrét Kristín segir unnið að því núna.
Þegar aðgerðunum er lokið og næsti veðurgluggi leyfir verður leit hafin. Þá fara sigmenn í sprunguna með rústabjörgunarmyndavél og kanna aðstæður. Það verður vonandi í nóvember.
Dómsmálaráðuneytið greiddi fyrir áhættumat COWI en Margrét Kristín segir í skoðun hver greiði kostnað leitarinnar.