Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfulltrúa geti verið í hlutastarfi.
Töluverður auka kostnaður fyrir borgarsjóð
Meirihluti borgarstjórnar lagði fram áskorun til Alþingis í byrjun mánaðar um að gera sveitarfélögum kleift að ráða fjölda kjörinna fulltrúa í eigin sveitarstjórn. Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögum.
Borgarfulltrúum fjölgaði úr 15 í 23 árið 2018. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur verið gagnrýnin á þá fjölgun.
„Bæði felur þetta auðvitað í sér töluverðan kostnaðarauka fyrir borgarsjóð, að vera með fleiri borgarfulltrúa á fullum launum og þetta er auðvitað svolítið óhefðbundið í Reykjavík. Ef við berum okkur saman við aðrar borgir erlendis, að borgarfulltrúarnir okkar eru á fullum launum og ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði.“
Hildur segir þetta að hluta til sparnaðartillögu. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu 18. október sagði hún að með þessu gæti borgin sparað að minnsta kosti 125 milljónir króna á ári eða um hálfan milljarð á kjörtímabili.
„Borgararnir eiga auðvitað ekki að greiða meira fyrir borgarfulltrúa en þörf er á. Og 15 fulltrúar, það fyrirkomulag gekk vel og þjónaði vel tilgangi sínum. Ég get ekki séð að starfsemi borgarinnar gangi einhvern veginn betur vegna þess að hér séu 23 borgarfulltrúar á fullum launum. Mér finnst það ekki góð ráðstöfun á skattfé.“
Mætti skoða hvort starf borgarfulltrúa geti verið hlutastarf
Hildur segir koma til greina að einhver hluti borgarfulltrúa verði ekki í fullu starfi.
„Ég hef tekið eftir því í samskiptum mínum við aðrar erlendar borgir að það þykir sérstakt að hér á Íslandi séum við með þetta marga fulltrúa og að þeir séu allir á fullum launum. Þannig að það má auðvitað alveg skoða hvort að minnsta kosti einhver hluti fulltrúanna sé í hlutastarfi.“
Sú reynsla sem fólk fái í öðrum störfum geti verið gulls ígildi í störfum í borgarstjórn.
Er full vinna að vera borgarfulltrúi?
„Ég hef verið borgarfulltrúi í átta ár og það hefur algjörlega verið full vinna fyrir mig, ég get nú sagt það. Ég hef svo sem verið í hlutverki oddvita eða ofarlega á lista og með mjög mörg stór verkefni en það má alveg ræða hvort það þurfi að vera full vinna fyrir alla.“
Borgarstjórn kalli núna eftir því að Alþingi leyfi sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa í eigin sveitarstjórn.
„Í dag erum við í Reykjavíkurborg bundin af því að vera að lágmarki með 23 fulltrúa.“
Hvar á að draga línuna?
Verði borgarfulltrúum fækkað eru fleiri borgarbúar sem eiga ekki fulltrúa og búast má við að fleiri flokkar nái ekki inn í kosningum. Hildur segir að gera megi þá kröfu til stjórnmálaflokka að þeir hafi nokkuð sterkt umboð þegar þeir taka sæti í borgarstjórn.
„Og ef við ætlum að taka þessa lýðræðisumræðu, hvar eigum við þá að draga línuna? Af hverju eru fulltrúarnir þá ekki 50 til að þeim mun fleiri eigi sinn fulltrúa í borgarstjórn?“
Skynsemi eigi að ráða för í þessum málum.
„Mér finnst 15 manna borgarstjórn hafa hentað nokkuð vel og reynst nokkuð skynsamlegt og ég held að það væri gott að hverfa aftur til baka til þess.“