Sífellt fleiri Repúblikanar snúast gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar kemur að uppbyggingu gagnavera þar vestra. Samhliða hefur óánægja kjósenda með þessar orku- og plássfreku framkvæmdir farið vaxandi.
Þegar innan við tvær vikur eru til miðkosninga í Bandaríkjunum hafa frambjóðendur úr báðum flokkum reynt að gera hosur sínar grænar fyrir kjósendum með því að tala gegn gagnaverum og jafnvel sagst ætla að banna uppbyggingu þeirra.
Gagnaver hafa enda sprottið upp eins og gorkúlur í Bandaríkjunum síðustu misseri. Í slíkum verum er óheyrilegt magn gagna geymt til þess að geta betur keyrt og fætt gervigreindarforrit, sem njóta síaukinna vinsælda. Svo hægt sé að nota gervigreindarforrit eins og ChatGPT, Claude, Gemini eða Grok hnökralaust verður að starfrækja gagnaver með tilheyrandi áhrifum á umhverfi, vatnsból og orkunet bæja, borga og ríkja.
Í nýlegri frétt CBS-fréttastöðvarinnar segir að fyrir fáeinum árum hafi uppbygging gagnavera verið mest í bláum ríkjum, það er ríkjum þar sem Demókratar njóta gjarnan meira fylgis. Á aðeins þremur árum hefur dæmið snúist við og 2025 voru um 68% gagnavera í rauðum ríkjum Repúblikana. Áform um ný gagnaver eru svo í 80% tilfella í rauðum ríkjum.
„Rauð ríki hafa sögulega verið samþykkari því að ráðist sé í stóra og orkufreka innviðauppbyggingu – jafnvel af þeim toga sem hefur áhrif á samfélagið,“ er haft eftir Chris Millay, sérfræðingi um gagnaver hjá ráðgjafafyrirtækinu Greenmantle. Hann segir einnig að í rauðum ríkjum sé minna um regluverk er lúta að umhverfisáhrifum og meira landnæði fyrir stórar framkvæmdir.
Þetta virðist þó vera að breytast, eins og áður segir, og það hratt. Greg Abbot, Repúblikani og ríkisstjóri Texas, hefur hætt að veita ný umhverfisleyfi fyrir gagnaver og lagst gegn því að nýjum gagnaverum sé hleypt inn á orkunet ríkisins. Hvergi í Bandaríkjunum eru fleiri gagnaver en í Texas. Abbot sækist eftir kjöri í kosningunum í nóvember og þannig eftir sínu fjórða kjörtímabili á stóli ríkisstjóra. Óánægja kjósenda í Texas, til dæmis vegna gagnavera, er slík að Gina Hinojosa, frambjóðandi Demókrata, fylgir óvenju fast á hæla Abbot í könnunum.
Í Texas er sömuleiðis mjótt á mununum í kosningum til öldungadeildar Bandaríkjaþings. Ken Paxton, frambjóðandi Repúblikana og dómsmálaráðherra Texas, vill hætta að veita gagnaverum skattaafslátt og segir að sækja eigi gervigreindarfyrirtæki til saka ef forrit þeirra eru notuð til að valda börnum skaða.
Þetta gengur í berhögg við málflutning Trumps forseta sem sagði á framboðsfundi í Ohio nýlega að svo miklir fjármunir væru í húfi fyrir ríkið að kjósendur gætu ekki hafnað uppbyggingu gagnavera þar. Hann varaði við því að þessi verðmætaskapandi starfsemi flyttist til höfuðóvinarins Kína.
Frambjóðendur beggja flokka í kosningunum í Ohio, þar á meðal fyrrverandi forsetaframbjóðandinn og Repúblikaninn Vivek Ramaswamy, leggjast gegn frekari uppbyggingu gagnavera þar.
Sömu sögu er að segja víðar. Í Nevada, Georgíu, Michigan, Virginíu og fleiri ríkjum hafa gagnaver og áhrif þeirra sett svip sinn á kosningabaráttuna. Tugmilljónum bandaríkjadala hefur verið eytt í kosningaauglýsingar þar sem gagnaver ber á góma.
Gagnaver eru svo pólitísk þrætuepli víðar. Í Finnlandi voru mótmæli nýlega vegna uppbyggingar gagnavers tæknirisans Google í Muhos í Norður-Finnlandi. Svo fór að áformin voru sett á ís.
Í Noregi hefur uppbyggingu gagnavera einnig verið mótmælt. Þar eru yfir 100 slík ver að störfum.
Hér á Íslandi eru svo nokkur gagnaver og enn fleiri áformuð, til dæmis á Norðurlandi. Gagnaversfyrirtækið atNorth var selt fyrr á þessu ári fyrir 485 milljarða króna.