Keppa við sjálfa sig - Samkeppni á tímum lífeyrissjóða

Keppa við sjálfa sig - Samkeppni á tímum lífeyrissjóða

Keppa við sjálfa sig - Samkeppni á tímum lífeyrissjóða

Lífeyrissjóðir landsmanna eiga stóran og jafnvel langstærstan hlut í fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þetta gerir öðrum fjárfestum kleift að komast yfir mikil völd í stórum fyrirtækjum fyrir tiltölulega lítinn pening.

Ástæðan er sú að lífeyrissjóðirnir forðast eins og heitan eldinn að skipta sér af því hvernig fyrirtækjunum er stýrt eða skipa fulltrúa í stjórnir til að gæta hagsmuna sinna.

Sjóðirnir bera því við að í stað beinna fulltrúa sé gengið úr skugga um að óháðir stjórnarmenn gæti hagsmuna þeirra og annarra hluthafa; skipaðir eftir mati og tillögum svokallaðra tilnefninganefnda. Eins og dæmin sanna eru tilnefninganefndirnar oft ekki eins óháðar og látið er í veðri vaka.

Fjárfestingafélagið Kaldbakur hefur völd vel um fram eignarhlut sinn í matvörurisanum Högum, þar sem framkvæmdastjóri Kaldbaks er stjórnarformaður. Fjórir lífeyrissjóðir eiga samt stærri hlut í Högum en Kaldbakur en enga beina fulltrúa í stjórn.

Þessi og áþekk dæmi hafa birst í stjórnum fleiri skráðra félaga þar sem lífeyrissjóðir eiga eða hafa átt vel yfir helming hlutafjár, til dæmis Festi, Sýn, Símanum og Nova, svo fáein séu nefnd.

Smáir en knáir

Í umfjöllun í Þetta Helst fyrir mánuði var farið yfir hvernig þetta hefði birst á umliðnum árum. Meðal annars af því hvernig Heiðar Guðjónsson fjárfestir tókst, eftir að hafa keypt innan við eins prósents hlut í Íslandsbanka, að komast í stjórn félagsins og setjast í sæti stjórnarformanns.

Það er langt í frá einsdæmi.

Einstakir lífeyrisjóðir eru ýmist stærstu eða með stærstu hluthöfum í fjölda skráðra félaga.

Gildi á stærstu einstöku hlutina, frá 10% upp í tæp 17%, í fimm stórum félögum. Má þar
nefna tæplega 16% hlut í Högum, 17% í Reitum, 16% í Sýn, 14% í Eimskipafélaginu og 10% í Síldarvinnslunni í Neskaupstað.

Gildi er stærsti eða næststærsti hluthafinn í mörgum þessara félaga en hefur engu að síður engan mann í stjórn né hefur boðið fram slíkan á hluthafafundum.

Svipaða sögu er að segja af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins – LSR – og Lífeyrissjóði verslunarmanna – LV. En þar vekur fleira athygli. Báðir eiga stóra hluti í fyrirtækjum sem eiga að keppa sín á milli. Þau eiga að berjast um sömu viðskiptavinina en hluti hagnaðarins rennur til sömu eigenda.

„Þetta er alveg augljóslega áhyggjuefni út frá samkeppnissjónarmiðum. Það þarf ekki hagfræðing eða einhvern sérfræðing í samkeppnisrétti til þess að sjá að það fer ekki vel á því að fyrirtæki sem eru í samkeppni skuli vera meira og minna með sömu eigendur,“ sagði Gylfi Magnússon í annarri umfjöllun í Þetta Helst um fyrirferð lífeyrissjóða í íslensku viðskiptalífi.

Eiga bæði Bónus og Krónuna

Dæmi um þessa krosseign lífeyrissjóðanna er af fyrirtækjum sem íslenskir neytendur sækja nauðsynjavörur til mjög reglulega, jafnvel daglega.

Í smásölu matvöruverslana og eldsneytis eru risarnir Hagar og Festi nánast áskrifendur að viðskiptum þriggja af hverjum fjórum Íslendingum.

Lífeyrissjóðir eiga samanlagt tvo þriðju alls hlutafjár í þessum félögum báðum.

Tveir af þeim þremur stærstu, LSR og LV, eiga meira að segja stóra hluti í þeim báðum. LSR yfir 10% í báðum. Sjóður verslunarmanna á enn stærri hluti í þessum keppinautum í baráttunni um brauð- og mjólkursölu; er stærsti einstaki eigandi Festi með 16% hlut en líka næststærsti eigandi Haga með 12% hlut.

Svona er þetta líka í tilfelli bankanna þriggja, Arion, Íslandsbanka og Kviku. Verslunarmenn og Gildi eiga hátt í 10% hlut í öllum þremur og LSR í tveimur. LSR á svo í öllum þremur fjarskiptafyrirtækjunum; Sýn, Símanum og Nova en líka í öllum fjórum fasteignafélögunum í Kauphöllinni.

Hætta við vopnahlé

Gylfi Magnússon sagði í þættinum að hann teldi lífeyrissjóðina vera meðvitaða um þessa stöðu en um leið hefðu þeir afar takmörkuð úrræði til þess að bregðast við þessu önnur en að skipa ekki menn í stjórnir sem hafi augljósa hagsmuni eða tengsl við keppinaut og svo framvegis.

Það er að sögn Gylfa eitt hlutverk eigenda að hvetja sitt fólk til dáða í samkeppni við keppinauta, reyna að vinna markaðshlutdeild og sigra í samkeppni. Áhyggjuefnið í tilfelli eignarhalds lífeyrissjóðanna snúist ekki um áhyggjur af samráði eða ólöglegri háttsemi.

„Það er ekki mikill hvati til þess þegar þú átt líka samkeppnisaðilann og kannski birtist þetta bara í því að menn gera mjög lítið. Það er bara hætt við því að samkeppnin, sem var nú kannski ekki mikil fyrir, koðni enn frekar niður,“ sagði Gylfi Magnússon í Þetta Helst.

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, er ekki á því að fjárfestingar lífeyrissjóða í tveimur eða fleiri félögum á sama markaði geti skaðað samkeppni. Birta er meðal sjóða sem eiga í fyrirtækjum sem teljast keppinautar þó hlutur Birtu í þeim sé mun minni en hjá stærri sjóðunum þremur.

„Þetta hefur kosti og galla,“ sagði Ólafur og benti á að þetta sé ekki séríslenskt fyrirbrigði, í Bandaríkjunum eigi lífeyrissjóðir upp undir 35-40% í skráðum félögum þótt vissulega væru þeir miklu fleiri og markaðurinn miklu stærri.

„Í þessu felst auðvitað umboðsvandi. Við þurfum að passa okkur að rækja þetta mjög vel en í þessu felst líka ákveðin skilvirkni.“

Skilvirknin sé sú að sem stórir hluthafar geti þeir með skráðum félögum mætt á hluthafafundi og sett sig betur inn í mál en einstaklingar geti.

Því fylgi líka kostur að lífeyrissjóðir séu tilbúnir að „fjármagna samkeppni þvert yfir markað,“ eins og Ólafur kallar það. Ef sjóðirnir keyptu einungis hlutabréf í einu fyrirtæki á markaði yrði fákeppnin meiri.

Óháðir fulltrúar

Andsvar lífeyrissjóðanna við gagnrýni á sameiginlegt eignarhald þeirra er að þeir skipti sér ekki af daglegum rekstri og eigi ekki beina fulltrúa í stjórnum þessara félaga. Stjórnarmenn eigi að vera óháðir einstaka hluthöfum, valdir út frá hæfismati tilnefningendanefnda. Þannig eigi eignarhaldið hvorki að koma niður á samkeppni né umbuna einum hluthafa á kostnað annars.

„Fyrir lífeyrissjóðina er þetta vissulega kannski tiltölulega þægilegt því þetta svona firrir þá ákveðinni ábyrgð,“ segir Gylfi Magnússon.

Sjóðirnir séu ekki með sitt fólk í stjórn heldur þá sem bjóða sig fram til þess og hafa verið metnir hæfir til setu í stjórnum skráðra félaga.

„En viðkomandi hafa þá líka persónulega ekki mikilla ef nokkurra hagsmuna að gæta af því hvernig gengur í samkeppninni.“

Gylfir segir þá vissulega geta komið á framfæri gagnlegum athugasemdum, lagt mat á einhverjar áætlanir og verið faglegir í sínu starfi en þeir verði aldrei „með svipuna á lofti til þess að hvetja forstjórann til dáða í samkeppni einfaldlega vegna þess að þeir sjálfir hafa ekkert mikla hagsmuni af því og sjá kannski að þeir sem kusu þá í stjórnina eða veittu þeim stuðning í stjórnina hafa engan sérstaka hagsmuni af því heldur vegna þess að þeir eiga samkeppnisaðilana líka,“ segir Gylfi.

Framkvæmdastjóri Birtu telur samskipti lífeyrissjóðanna við félögin sem þeir fjárfesta í vera í föstum skorðum. Því sé gagnrýni á aðgerða- og afskiptaleysi þeirra að einhverju leyti ósanngjörn.

„Virkninni er lýst á heimasíðunni hjá okkur í þeim skilningi að það er hægt að fara inn á alla skráða fundi sem við tökum þátt í og yfirfara hvernig við greiðum atkvæði og það er í sjálfu sér kannski ekki okkar að meta hversu virk við erum en það er þá að minnsta kosti hægt að bera það saman við aðra og spyrja sig: Erum við eitthvað ólíkir öðrum fagfjárfestum,“ sagði Ólafur hjá Birtu.

Lífeyrissjóðir eins og Birta þurfi líka að gæta að því að samræmi sé milli þess sem sjóðurinn samþykkir hjá einu skráðu félagi en leggst mögulega gegn hjá öðru.

„Það er mjög sjaldan sem ég man eftir að við höfum samþykkt eitthvað alveg á skjön við þorra allra annarra hluthafa.“

Gylfi segir að þótt vissulega sé mikilvægt að minna á að lífeyrissjóðirnir séu langt í frá ein samstæð heild sé það einkennandi hversu lítið þeir hafa látið til sín taka innan þessara félaga þar sem þeir eigi sannarlega hagsmuni að verja.

„Þeir eru náttúrlega nokkuð augljóslega ekki að nýta sér öll þau tækifæri sem þeir hafa,“ segir Gylfi og bendir á að margir sjóðir eigi frá 10% upp í 15% í hverju einasta skráða félagi. Því fylgi bæði tækifæri og ábyrgð sem hafi ekki verið nýtt. Hann segir dæmi um þetta vera ákvarðanir og gagnrýni á laun forsvarsmanna félaganna.

„Lífeyrissjóðirnir hafa stundum svona sagt eitthvað mjög pent í gagnrýni á slíka hluti en aldrei gripið neitt harkalega inn í.“

Á herðum risans

Áður hefur verið bent á að litlir hluthafar skráðra félaga komist í að vera nær alráðir í félögunum. Gylfi Magnússon segir að það eigi ekki að koma á óvart.

„Það er eiginlega bara óhjákvæmileg afleiðing af þessari afstöðu lífeyrissjóðanna. En auðvitað er skrítið að það sé hægt að ná nánast yfirráðum yfir risastóru almenningshlutafélagi úti á sáralítinn eignarhlut.“

Ólafi Sigurðssyni þykir ekki gott að umræðan snúist um hvaða hagsmuni einstaka stjórnarmenn gæti. Það sé alveg skýrt hvaða hagsmuni þeir eigi að hafa í forgrunni.

„Við gerum ekki kröfu til þess að einn einstakur stjórnarmaður gæti sérstaklega hagsmuna Birtu umfram aðra hluthafa og ríkasta krafan sem við gerum til allra stjórnenda er að þeir gæti hagsmuna allra hluthafa með jafnræði í huga. Það er í raun og veru ólöglegt ef einstaka stjórnarmaður í krafti einstakra hluthafa reynir að afla sér og sínum hluta einhverra hagsmuna umfram okkur.“

Ólafur er spurður hvers vegna fulltrúar þessara smærri hluthafa leggi svo ríka áherslu á að komast í stjórnir og stjórnarformannssæti þessara félaga, eins og fjölmörg dæmi vitna um; til að mynda í tilfelli Heiðars Guðjónssonar og Íslandsbanka, Kaldbaks og Haga, Þórðar Más Jóhannssonar í Festi svo nokkur dæmi séu tekin.

- Er einhver tilgangur fyrir framkvæmdastjóra Kaldbaks að setjast sem stjórnarformaður í Högum nema vegna þess að hann er þar að gæta hagsmuna Kaldbaks?

„Sem hljóta að fara saman við hagsmuni annarra hluthafa. Ég lít á alla stjórnina sem hluthafa í Birtu.“

„Tilfinninganefndir“

Lífeyrissjóðirnir réttlæta það að taka ekki þátt í stjórnum þessara fyrirtækja líka með því að í stjórnirnar séu valdir svokallaðir óháðir stjórnarmenn. Gylfi segir það vissulega sjónarmið.

„Hugmyndin um óháða stjórnarmenn hefur vissulega bæði kost og galla og fyrir lífeyrissjóðina er þetta vissulega kannski tiltölulega þægilegt því þetta svona firrir þá ákveðinni ábyrgð,“ segir Gylfi Magnússon.

En hver velur svo þessa óháðu stjórnarmenn?

Jú, svokallaðar tilnefningarnefndir. Í þeim sitja þrír fulltrúar sem vega og meta einstaklinga sem gefið hafa sig fram við nefndirnar; boðið sig fram. Nefndin leggur síðan til fimm manna lista yfir álitlega fulltrúa í stjórnina. Þar eru þó sjaldnast fimm ný nöfn enda er sjaldnast verið að skipta út stjórnum í heilu lagi. Einn eða tveir nýir bætast þó oft við á listum tilnefninganefnda.

Tilnefninganefndir voru fyrst kynntar til sögunnar 2009 og tekist hefur verið á um ágæti síðan. Ólafur hjá Birtu segir að þessar deilur hafi verið svo heitar að hann kalli þær stundum í gríni „tilfinninganefndir“. Það sé hins vegar alrangt sem ítrekað er haldið fram að lífeyrissjóðirnir hafi óskað eftir eða lagt til þessar nefndir.

„Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð og Kauphöllin lögðu þetta til sjálf.“

Um hvort tilkoma nefndanna var til góðs eða ills, segir Ólafur of snemmt að dæma.

„En ég held að það hafi verið til góðs að nú geta þeir sem hafa virkilega áhuga á þessu rýnt allar þær skýrslur sem þessar nefndir hafa gefið út til að bera saman hvort nefnd sem skipuð var fullkomlega utanaðkomandi aðila hafi verið eitthvað betri en nefnd sem var skipuð af stjórn.“

Velja sig sjálf – tvisvar

Það sem Ólafur nefnir þarna hefur að gera með hvernig staðið er að vali á þessum óháðu stjórnarmönnum, það er að segja hverjir velji óháðu tilnefninganefndirnar sem svo velja stjórnarmennina. Vald tilnefninganefndanna getur enda verið mismikið eins og dæmin sanna. Stundum leggja þær fram tillögur sem eigendur kjósa um á hluthafafundi. Stundum velja þær hins vegar stjórnarmennina beint.

Það er eins með tilnefninganefndirnar sjálfar, stundum eru þær meira að segja skipaðar af stjórninni sjálfri. Hjá Eimskipafélaginu var það til dæmis þannig, allt þar til því var breytt á aðalfundi í byrjun árs, að hluthafafundur hafði síðasta orðið um val nefndarinnar og tillögur hennar um stjórnarmenn. Í hálfan annan áratug hafa lífeyrissjóðir átt um og yfir helming hlutafjár í Eimskipafélaginu en engan sérstakan fulltrúa í stjórn, ólíkt öðrum hluthöfum.

Þar hefur stjórnin skipað þriggja manna tilnefningarnefnd sem í hafa jafnan setið tveir ef ekki þrír stjórnarmenn. Stjórn Eimskips, sem í sátu þau Lárus Blöndal, Óskar Magnússon og Margrét Guðmundsdóttir, valdi til að mynda tilnefninganefnd fyrir rúmu ári. Í hana völdust þau Lárus Blöndal, Óskar Magnússon og Margrét Guðmundsdóttir. Þessi þrjú höfðu sem sagt það hlutverk að meta hverjir væru hæfastir til að sitja í stjórn Eimskipafélagsins næsta árið.

Tilnefninganefndin komst að einróma niðurstöðu og taldi fimm manns hæfust í stjórn, meðal annars þremenningana Lárus Blöndal, Óskar Magnússon og Margréti Guðmundsdóttir.

#keppa #samkeppni #sig #sjálfa #við


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-20-keppa-vid-sjalfa-sig-samkeppni-a-timum-lifeyrissjoda-490055

📰 Aðrar fréttir

Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þess...
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
📅 20.10.2026 👁️ 1
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka ma...
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
📅 20.10.2026 👁️ 1
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem ...
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
📅 20.10.2026 👁️ 2
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti ...
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
Ukraine had accused the US of withholding key intelligence - a claim rejected as "scandalous" by Washington.
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
📅 20.10.2026 👁️ 1
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
Tommy Lee, klámmyndaleikari og fyrrverandi hnefaleikamaður, hefur verið orðaður við að vera barnsfaðir hinnar umdeildu klámstjörnu Bonnie Blue. Tommy ...
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
📅 20.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fó...
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
📅 20.10.2026 👁️ 2
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
The government is expected to accept all 27 recommendations made in the review by ex-Ofsted boss, Sir David Bell.
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
📅 20.10.2026 👁️ 1
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagni...
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fó...
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
📅 20.10.2026 👁️ 2
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
HarmageddonÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stór...
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinu...
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 1
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann ...
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
📅 20.10.2026 👁️ 2
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum t...
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
📅 20.10.2026 👁️ 3
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
Leikarinn Jason Sudeikis opnar sig um það sem fór úrskeiðis í sambandi hans og leikkonunnar og leikstjórans Oliviu Wilde.Leikarinn tjáir sig venjulega...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kj...
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
📅 20.10.2026 👁️ 2
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var...
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
Ungt par í Bretlandi missti dóttur sína aðeins tíu daga gamla úr HSV vírusnum, sem veldur frunsu. Móðirin segist berjast við sektarkennd þar sem líkle...
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði h...
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
📅 20.10.2026 👁️ 1
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfull...
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
📅 20.10.2026 👁️ 1
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
Íris Erlingsdóttir skrifar: Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjó...
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
📅 20.10.2026 👁️ 1
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirbu...
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 1
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka ...
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyr...
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
📅 20.10.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvan...
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, s...
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og...
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
📅 20.10.2026 👁️ 3
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og sérstaklega hættulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Maðurinn var...
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
📅 20.10.2026 👁️ 3
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru manns sem sótt hafði um starf hjá Vegaerðinni. Hafði hann krafist upplýsinga um nöfn allra annarr...
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
📅 20.10.2026 👁️ 2
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
📅 20.10.2026 👁️ 3
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
Counter-terror police say the men have been arrested on suspicion of assisting a foreign intelligence service.
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 1
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son m...
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sa...
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með þ...
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga ...
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir að hún verði stundum hissa á því hvað hún er fljót að bregðast við því versta, það sé e...
„Það er sitt­hvað til í því sem hann er að segja“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
„Það er sitt­hvað til í því sem hann er að segja“ - Vísir
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar á fimmtudag í síðustu viku og vísaði meðal annars til pólitísks ágreinings innan þingflokksins og að hann...
Um­deildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
Um­deildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir - Vísir
Alex Cooper er gift Matt Kaplan og voru þau bæði að verða foreldrar í fyrsta sinn en þau reka saman fjölmiðilinn Unwell. Hlaðvarp Cooper hefur ratað á...
Failings allowed Covid 'to spread like wildfire' in care homes, inquiry finds
📅 20.10.2026 👁️ 4
Failings allowed Covid 'to spread like wildfire' in care homes, inquiry finds
The sixth report from Covid inquiry criticises the lack of PPE and the way patients were discharged from hospital.
Harry vill sættast við fjöl­skylduna - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Harry vill sættast við fjöl­skylduna - Vísir
Hinn 42 ára Harry, Bretaprins, hertogi af Sussex og yngri sonur Karls Bretakonungs, olli mikilli sundrung í konungsfjölskyldunni árið 2020 þegar hann ...
Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló - Vísir
Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, sem hefur verið tíður gestur í Moskvu að undanförnu hitti Selenskí í Osló í dag. Johans Gah...
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram - Vísir
Rósa gagnrýndi afstöðu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í ræðu á Alþingi. Tilefnið voru ummæli ráðherra í viðtali við Vísi í síðustu viku, þar sem A...
Lögreglan rannsakar sprengjuhótanir sem enn eru að berast
📅 20.10.2026 👁️ 4
Lögreglan rannsakar sprengjuhótanir sem enn eru að berast
Sprengjuhótanir hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum að undanförnu. Sprengjusveit sérsveitar var kölluð út í síðustu viku vegna hótana sem ...
Sé skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sé skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
Hún segir vanta fleiri fangelsispláss og það fáist með byggingu Stóra-Hrauns en einnig séu aðstæður í íslenskum fangelsum þannig í dag að ekki sé hægt...
Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
Hún segir vanta fleiri fangelsispláss og það fáist með byggingu Stóra-Hrauns en einnig séu aðstæður í íslenskum fangelsum þannig í dag að ekki sé hægt...
Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs
📅 20.10.2026 👁️ 4
Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs
Sífellt fleiri Repúblikanar snúast gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar kemur að uppbyggingu gagnavera þar vestra. Samhliða hefur óánægja kjósend...
Stefna á að hefja leit í nóvember - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
Stefna á að hefja leit í nóvember - Vísir
Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir í samtali við fréttastofu að ákvörðun verið tekin um fyrstu fasa leit að líkamsleifum ...
Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni
📅 20.10.2026 👁️ 4
Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...