Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fangelsinu við Stóra-Hraun ásamt fangelsismálastjóra og bæjarstjóra Árborgar.
Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun og bættri aðstöðu. Dómsmálaráðherra segir áfangan gleðiefni. Ísland hafi ekki átt öryggisfangelsi til þessa og við blasi að fangelsispláss hafi vantað í mörg ár.
„Þeim hefur ekkert fjölgað á sama tíma og þjóðinni hefur fjölgað stórkostlega og allt landslag afbrota hefur breyst til mikilla muna. Dómar eru að fyrnast sem þýðir á íslensku að maður er dæmdur til fangelsisvistar þarf ekki að afplána dóminn. Það eru auðvitað eins óheilbrigð skilaboð til samfélagsins og hugsast getur.“
Getum ekki verið stolt af fangelsismálum
Hún segir kostnaðarmat við fyrri hlutann, sem er um 18 milljarðar, enn standa en heildarkostnaður verði um 30 milljarðar. Fangelsisbyggingar séu alltaf dýrar. Það þurfi aftur á móti líka að hugsa til samfélagslegs kostnaðar þess að fjárfesta ekki í húsnæði í fangelsismálum
„Ég nefni sem dæmi alvarleg kynferðisbrot, þau alvarlegustu sem samfélaginu öllu finnst. Ef að það gerist að maður er dæmdur fyrir slíkt brot en þarf ekki að afplána. Það er okkur líka mjög dýrt.“
Þá segir hún sömuleiðis þurfa að bæta aðstöðu fanga og fangavarða. Staðan á Litla-Hrauni í dag sé sorgleg og ljóst að það sé orðið tímabært að fara í þessar fjárfestingar.
„Við getum sem þjóð ekki verið stolt af því hvernig að fangelsum hefur verið búið.“
Sterk saga á Suðurlandi
Hún kveðst virða ákvörðun forvera síns, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, um að hafa nýja fangelsið á Suðurlandi og segir gott að færa verkefni út fyrir höfuðborgarsvæðið þegar hægt er.
„Hér eru margar fjölskyldur þar sem kynslóð fram að kynslóð hefur unnið í fangelsinu. Ég finn það hjá Árborg og sveitarfélögunum hér að það er mikill áhugi á því að fá þessi störf til sín.“
Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar segir íbúa heilt yfir sátta með uppbyggingu fangelsisins.
„Það er sterk saga í þessu samfélagi um að fangelsi sé hérna við Eyrarbakka og það hefur öllum litist vel á að sú uppbygging yrði á þessu svæði“
Bylting í sögu fangelsismála á Íslandi
Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri segir að þrátt fyrir að tilvikum þar sem mál fyrnist hafi fækkað séu þau enn of mörg. Fangelsið sem muni rísa á Stóra-Hrauni sé bráðnauðsynegt.
Það sé löngu orðið ljóst að á Íslandi þurfi ekki einungis fleiri fangelsisrými heldur fangelsi þjóni breyttri starfsemi.
Úrbætur hafi verið gerðar á húsnæðinu á Litla-Hrauni í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um málefni Fangelsismálastofnunar, til að hægt væri að nota húsnæðið tímabundið þar til hægt væri að flytja starfsemina á Stóra-Hraun. Það dugi þó ekki til lengdar.
„Það má bara segja að þetta sé bylting í sögu fangelsismála á Íslandi.“