Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.
Tilkynnt var um tvær hópuppsagnir á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni í september og því má reikna með að þegar uppsagnarfresti starfsfólksins lýkur eigi enn eftir að bætast í hópinn.
Alls voru rúmlega 8.800 manns atvinnulausir í september sem jafngildir 4% atvinnuleysi. Háskólamenntaðir eru um 30% þeirra.
Ásta Ásgeirsdóttir, deildarstjóri gagnagreiningar hjá Vinnumálastofnun, segir að hlutfallið hafi haldist nokkuð stöðugt á undanförnum árum. Hafa þurfi í huga að háskólamenntaðir séu um 45% sem starfa á vinnumarkaði, þ.e. á aldrinum 25–65 ára. Atvinnuleysi hjá þessum hópi sé minna en hjá mörgum öðrum hópum.
Almennt hafi fremur litlar breytingar orðið á atvinnuleysi einstakra hópa með háskólapróf – með einni undantekningu, fólk með menntun í tölvunarfræði og skyldum greinum.
Ekki hafi orðið sambærileg fjölgun á atvinnuleysisskrá meðal annarra háskólaborgara, til dæmis meðal viðskiptafræðinga, en 363 viðskiptafræðingar eða fólk sem lokið hefur prófi í skyldum greinum eru á atvinnuleysisskrá, 20% fleiri en fyrir tveimur árum.
Um 100 hafa lokið prófi í lögfræði, rúmlega 20% fleiri en á sama tíma 2024 og þau sem lokið hafa prófi í hagfræði og skyldum greinum eru sömuleiðis um 100, nánast jafnmörg og 2024.
Hafa verður í huga að margir eru með þessa menntun og þau vinna líka fjölbreytt störf víða í atvinnulífinu. Þá hafa margir lokið námi úr þessum greinum á undanförnum árum. Á átta ára tímabili, frá 2018-2025 útskrifuðust tæplega 2.600 viðskiptafræðingar, um 1.500 tölvunarfræðingar, um 870 lögfræðingar og 270 hagfræðingar. Hér er átt við þau sem útskrifuðust úr grunnnámi í þessum greinum frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykavík, Háskólanum á Akureyri og Bifröst.
Tölvunarfræðingar stöldruðu áður stutt við
Ásta segir að fólk með menntun í tölvunarfræði hafi almennt staldrað stutt við á atvinnuleysisskrá, hafi það komið inn á skrá yfir höfuð. „Við erum að sjá fólk sem kemur inn á skrá hjá okkur með tölvunarfræðibakgrunn og situr lengur á atvinnuleysisbótum heldur en áður fyrr,“ segir hún.
Um háskólamenntaða má segja að þeir séu álíka lengi á atvinnuleysisskrá og aðrir hópar, álíka gamlir og kynjahlutfallið sé svipað.
Þegar skoðað er hvaða hópar það eru helst sem eru lengi atvinnulausir eru útlendingar lengur á atvinnuleysisskrá, það sama á við um konur og eftir því sem fólk er eldra er það lengur atvinnulaust.
Grunnskólamenntaðir stærsti hópur á atvinnuleysisskrá
Þeir sem eru skráðir með grunnskólamenntun eru 26% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Tæplega 10% gefa ekki upp menntun og Ásta segir að oftar en ekki sé það fólk ekki með meiri menntun en grunnskólamenntun. Þegar þessir tveir hópar eru teknir saman er sá hópur um 35% af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá.
Grunnskólamenntaðir á aldrinum 25–65 ára eru um 20% þeirra sem eru á vinnumarkaði. Þá eiga þeir almennt erfiðara með að finna sér nýtt starf og eru meiri líkur á að þeir verði atvinnulausir til langs tíma.
Við þetta má bæta að hlutfall iðnmenntaðra á vinnumarkaði er um 18% en það er aðeins tæplega 9% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þar eru húsasmiðir fjölmennastir eða 80, 62 höfðu lokið námi í matreiðslu, 50 í bifvélavirkjun og þá voru 44 rafvirkjar og 27 píparar án atvinnu.