Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var sagt að þeir sem væru þegar með umsóknir inni áður en lögin tækju gildi yrðu í gamla kerfinu og þyrftu ekki að fara í útboð. Síðan settist einhver í ráðuneytinu ofan á lögin og beðið var með birtingu í nokkra daga. Skýrslur voru dagsettar aftur í tímann og passað upp á að sem flestar umsóknir næðu inn áður en lögin voru birt. Ólafur Arnarson ræðir við Katrínu Oddsdóttur, lögmann og umhverfisverndarsinna, í hlaðvarpi Eyjunnar.
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun