Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og áhöfnin ekki í neinni hættu.
„Sigurvin var kominn að Hildi um ellefu leytið í morgun og komu áhafnir skipanna taug á milli þeirra. Stefnan var svo sett á Dalvík. Ferðin gekk rólega en örugglega og komu skipin til hafnar á Dalvík rétt upp úr fjögur nú í eftirmiðdaginn,“ segir í tilkynningunni.
Áhöfn Sigurvins hafi þá fært björgunarskipið á síðu Hildar til að hafa betri stjórn á henni við að leggja henni að bryggju. Sigurvin hafi þegar tilkynningin var skrifuð verið að leggja aftur í hann til Siglufjarðar þar sem skipið verður gert klárt til útkalls á ný.