Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirburði gagnvart henni í tvígang snemma árs 2023.
Héraðssaksóknari höfðar málið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Aðalmeðferð verður fyrir luktum dyrum í næstu viku, vegna viðkvæmni málsins.
Manninum er gert að sök að hafa í tvö skipti í mars 2023 farið inn á heimili konunnar og brotið þar á henni kynferðislega. Hann er sagður hafa nauðgað konunni, kysst hana og komið við líkama hennar án samþykkis.
Í ákæru, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir að hann hafi nýtt sér yfirburðastöðu gagnvart henni, bæði vegna þroskamunar og vegna trausts sem hún bar til hans sem bílstjóra. Í ákæru er afmáð á vegum hvers maðurinn ók. Konan hafi ekki getað spornað við verknaðnum sökum andlegrar fötlunar.
Farið er fram á að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Í einkaréttarkröfu er svo til viðbótar farið fram á að maðurinn borgi tvær og hálfa milljón króna í miskabætur, ásamt þóknun fyrir störf réttargæslumanns.