Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvana. Þetta kemur fram í tilkynningu Landsbjargar.
Þar segir að skipið hafi verið statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar þegar það fékk veiðifærin í skrúfuna. Veður á staðnum hafi verið ágætt. Átta hafi verið í áhöfn skipsins en hafi ekki verið í neinni hættu.
Skipið hafi verið dregið á Dalvík eftir að taug var komið á milli skipanna. Ferðin hafi gengið örugglega fyrir sig og skipin komin í höfn rétt upp úr fjögur í dag.
Björgunarskipið Sigurvin heldur nú aftur til Siglufjarðar þar sem það verður gert klárt til útkalls.