Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?

Íris Erlingsdóttir skrifar:

Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjórnunarstöðum eða á Alþingi, heldur allir. Allir karlmenn. Sjómenn, vörubílstjórar, rafvirkjar, smiðir, pípulagningamenn, vélstjórar, verkamenn, bændur, flugmenn, lögreglumenn og allir hinir.

Engir karlmenn færu á sjó. Fáir vörubílstjórar flyttu vörur milli landshluta. Engir karlkyns rafvirkjar mættu til að gera við bilanir í rafmagnskerfinu, engir karlkyns píparar kæmu þegar vatnslögnin spryngi. Engir karlkyns starfsmenn sinntu störfum sínum í virkjunum, álverum eða við hafnir landsins. Auðvitað færu karlkyns læknar, kennarar, hjúkrunarfræðingar og aðrir starfsmenn heilbrigðis- og menntakerfisins líka í frí. Svo mætti ganga skrefinu lengra. Karlarnir sinntu ekki heldur heimilisstörfum, börnum eða öldruðum ættingjum þennan dag.

Hvað myndi gerast? Við þekkjum svarið við sambærilegri spurningu um konur. Hinn 24. október 1975 lögðu um 90% íslenskra kvenna niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns. Kvennafrídagurinn varð sögulegur viðburður, ekki aðeins á Íslandi heldur á heimsvísu. Konur gengu út af vinnustöðum sínum, heimili urðu að bjarga sér án vinnuframlags þeirra og þjóðin fékk áþreifanlega áminningu um að störf kvenna væru enginn sjálfsagður hlutur.

Þetta var snjallt. En hvers vegna höfum við aldrei séð íslenska karlmenn ganga út af vinnustöðum sínum í stórum stíl, safnast saman á Austurvelli og minna þjóðina á hvað þeir leggja til samfélagsins? Hvers vegna er svo sjálfsagt að halda hátíðlega upp á framlag kvenna, en aldrei eru sambærilegar þakkir færðar körlum?

Konurnar eiga sína daga – en hvað með karlana?

Íslendingar hafa ekki verið sparir á sérstaka daga tileinkaða konum. Við höfum konudaginn, sem á sér rætur í gamla íslenska misseristalinu sem og alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars, kvenréttindadaginn 19. júní og kvennafrídaginn 24. október. Á þessum dögum eru haldnar ræður og rifjuð upp afrek kvenna, réttindabarátta þeirra og framlag til samfélagsins. En hvað með karlmenn? Jú, þeir eiga bóndadaginn. Þá er við hæfi að færa bóndanum blóm, bjóða honum upp á steik eða kannski muna eftir því að hann sé til. En bóndadagurinn er ekki sambærilegur við kvenréttindadaginn eða alþjóðlegan baráttudag kvenna.

Alþjóðlegur dagur karla er raunar til. Hann er haldinn 19. nóvember ár hvert og er m.a. ætlað að vekja athygli á jákvæðu framlagi karla til samfélagsins, heilsu þeirra, velferð og þeim vandamálum sem sérstaklega snerta karla og drengi. En hve margir Íslendingar vita það? Hve oft hefur íslenskur forsætisráðherra haldið hátíðarræðu á alþjóðlegum degi karla? Hve oft hefur þjóðin verið hvött til að þakka körlum fyrir framlag þeirra? Hve margar ráðstefnur, opinberar herferðir eða sérstakar dagskrár hafa verið tileinkaðar deginum?

Hverjir standa undir íslenska velferðarkerfinu?

Kannski er kominn tími til að við hættum að líta á framlag karla sem sjálfsagðan hlut. Íslenska ríkið er ekki rekið á hátíðarræðum, jafnréttisáætlunum eða góðum ásetningi. Það er rekið á skattfé. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru meðalheildartekjur íslenskra karla árið 2025 rúmlega 960 þúsund krónur á mánuði. Meðalheildartekjur kvenna voru rúmlega 790 þúsund krónur. Munurinn er rúmlega tvær milljónir króna á ári. Á aldursbilinu 25 til 64 ára voru meðalheildartekjur karla um 1.088 þúsund krónur á mánuði, en kvenna 897 þúsund krónur. Skoðum annað atriði. Samkvæmt Hagstofu Íslands störfuðu um 40% starfandi kvenna hjá hinu opinbera árið 2025, en aðeins um 17% starfandi karla.

Um 83% starfandi karla vinna utan opinbera geirans, en um 60% starfandi kvenna. Konur eru því mun líklegri en karlar til að starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Þetta vekur mikilvægar spurningar um samsetningu íslenska hagkerfisins. Hverjir standa að baki framleiðslunni, framkvæmdunum, flutningunum og rekstrinum sem skapa forsendur fyrir þeirri þjónustu sem ríkið veitir?

Það er auðvelt að tala um jafnrétti í hlýjum fundarsal

Sum störf eru ósýnileg í opinberri umræðu. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut að rafmagnið komi þegar við ýtum á rofann, vatnið renni úr krananum og vörurnar séu komnar í verslanirnar þegar við þurfum á þeim að halda. Við hugsum sjaldan um fólkið sem heldur þessu öllu gangandi. Í nær öllum þessara atvinnugreina eru karlar í miklum meirihluta.Þeir vinna við mannvirkjagerð, vélaviðgerðir, þungaflutninga, sjósókn og ýmis önnur afar líkamlega erfið og hættuleg störf. Það er auðvelt að tala um jafnrétti í hlýjum fundarsal, þar sem kaffið er heitt og einhver annar sér um að rafmagnið virki. Það er öllu erfiðara að gera við rafmagnslínu í vetrarstormi eða vinna á dekki fiskiskips í vondum sjó.

Árið 1975 lögðu íslenskar konur niður störf og sýndu þjóðinni hvað gerðist þegar vinnuframlag þeirra hvarf í einn dag. En hvað ef karlar gerðu slíkt hið sama? Framkvæmdir myndu stöðvast víða. Flutningakerfið yrði fyrir verulegri röskun. Fiskiskip með karlkyns áhafnir lægju við bryggju. Fjöldi fyrirtækja yrði að endurskipuleggja starfsemi sína. Viðhald og viðgerðir myndu tefjast og í ýmsum nauðsynlegum þjónustugreinum þyrfti að grípa til neyðarráðstafana. Og þá er ótalið allt það sem karlar gera utan launaðrar vinnu. Feður sem sjá um börnin sín, synir sem annast aldraða foreldra, eiginmenn sem sinna heimilum sínum. Afi sem sækir barnabörnin í leikskólann. Maðurinn sem lagar það sem bilar, mokar snjóinn eða keyrir ættingja sinn á sjúkrahús. Hvað ef þeir tækju sér líka frí? Skyndilega sæjum við betur hversu margt hvílir á herðum karla.

Hvað með heilsu, líðan og réttindi karlmanna?

Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum undanfarna áratugi. Umræða um jafnrétti hefur að nær öllu leyti snúist um stöðu kvenna og réttindi þeirra. En samfélög breytast, og umræðan þarf að breytast með því. Við getum ekki endalaust talað um kynin eins og staða þeirra sé óbreytt frá árinu 1975. Karlar standa líka frammi fyrir sérstökum vandamálum. Þar má nefna sjálfsvíg, brotthvarf úr námi, vinnuslys, einmanaleika og stöðu feðra eftir sambúðarslit. Þetta eru ekki smávægileg mál. En samt virðist athygli samfélagsins á stöðu karla takmörkuð við það hvernig þeir geti orðið betri feður, betri eiginmenn eða betri stuðningsmenn kvenna. Hvað með karlmennina sjálfa? Hvað með þeirra heilsu, líðan, réttindi, skyldur og framlag?

Hvers vegna ætti að vera eitthvað vandræðalegt við að segja einfaldlega: Takk, strákar. Takk fyrir að byggja húsin okkar, leggja vegina, flytja vörurnar, leggja rafmagnið, skolpleiðslurnar, halda vélunum gangandi og vinna öll þessi störf sem samfélagið gæti ekki verið án. Takk fyrir skattana sem þið greiðið, börnin sem þið alið upp og fjölskyldurnar sem þið annist. Takk fyrir að vera til.

Karlafrídagur 24. nóvember – af mjög persónulegri ástæðu

Ég legg til að Íslendingar stofni til sérstaks karlafrídags, þar sem karlar leggja niður störf og þjóðin fær tækifæri til að átta sig á framlagi þeirra til samfélagsins. Okkar velferðarsamfélag væri ekki til án karlmanna og við ættum að minna þjóðina á það með eftirminnilegum hætti, t.d. með því að íslenskir karlar legðu niður störf í einn dag. Þá kæmi fljótt í ljós hversu mörgum hjólum samfélagsins þeir halda gangandi. Kannski er kominn tími til að sjá hvað gerist þegar karlmenn leggja niður störf. Ekki til að minna á hvað þeir eiga bágt, heldur til að minna á hvað þeir gera.

Ég legg til að dagurinn verði haldinn hátíðlegur 24. nóvember. Dagsetning er ekki valin af handahófi, hún er afmælisdagurinn minn og sem sjálfskipaður verndari íslenskra karlmanna finnst mér auðvitað sanngjarnt að ég fái að velja hann. (🤭 Elska ykkur, strákarnir mínir!)

Höfundur er fjölmiðlafræðingur.

#borgar #brúsann #hvar #hver #karlmannadagurinn

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/hvar-er-karlmannadagurinn-hver-borgar-brusann-og-hvad-gerdist-ef-islenskir-karlmenn-taekju-ser-fri-i-einn-dag/

📰 Aðrar fréttir

Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þess...
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka ma...
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem ...
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
📅 20.10.2026 👁️ 2
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti ...
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
Ukraine had accused the US of withholding key intelligence - a claim rejected as "scandalous" by Washington.
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
📅 20.10.2026 👁️ 2
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
Tommy Lee, klámmyndaleikari og fyrrverandi hnefaleikamaður, hefur verið orðaður við að vera barnsfaðir hinnar umdeildu klámstjörnu Bonnie Blue. Tommy ...
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
📅 20.10.2026 👁️ 2
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fó...
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
📅 20.10.2026 👁️ 2
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
The government is expected to accept all 27 recommendations made in the review by ex-Ofsted boss, Sir David Bell.
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
📅 20.10.2026 👁️ 2
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagni...
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fó...
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
📅 20.10.2026 👁️ 2
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
HarmageddonÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stór...
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinu...
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann ...
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
📅 20.10.2026 👁️ 2
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum t...
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
📅 20.10.2026 👁️ 3
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
Leikarinn Jason Sudeikis opnar sig um það sem fór úrskeiðis í sambandi hans og leikkonunnar og leikstjórans Oliviu Wilde.Leikarinn tjáir sig venjulega...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kj...
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
📅 20.10.2026 👁️ 3
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var...
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
Ungt par í Bretlandi missti dóttur sína aðeins tíu daga gamla úr HSV vírusnum, sem veldur frunsu. Móðirin segist berjast við sektarkennd þar sem líkle...
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði h...
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfull...
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
📅 20.10.2026 👁️ 2
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirbu...
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka ...
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyr...
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
📅 20.10.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvan...
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, s...
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og...
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
📅 20.10.2026 👁️ 4
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og sérstaklega hættulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Maðurinn var...
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
📅 20.10.2026 👁️ 4
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru manns sem sótt hafði um starf hjá Vegaerðinni. Hafði hann krafist upplýsinga um nöfn allra annarr...
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
📅 20.10.2026 👁️ 3
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
Counter-terror police say the men have been arrested on suspicion of assisting a foreign intelligence service.
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 2
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son m...
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sa...
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með þ...
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga ...
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir að hún verði stundum hissa á því hvað hún er fljót að bregðast við því versta, það sé e...
„Það er sitt­hvað til í því sem hann er að segja“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
„Það er sitt­hvað til í því sem hann er að segja“ - Vísir
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar á fimmtudag í síðustu viku og vísaði meðal annars til pólitísks ágreinings innan þingflokksins og að hann...
Keppa við sjálfa sig - Samkeppni á tímum lífeyrissjóða
📅 20.10.2026 👁️ 4
Keppa við sjálfa sig - Samkeppni á tímum lífeyrissjóða
Lífeyrissjóðir landsmanna eiga stóran og jafnvel langstærstan hlut í fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þetta gerir öðrum fjárfestum kleift að komast yfir mi...
Um­deildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
Um­deildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir - Vísir
Alex Cooper er gift Matt Kaplan og voru þau bæði að verða foreldrar í fyrsta sinn en þau reka saman fjölmiðilinn Unwell. Hlaðvarp Cooper hefur ratað á...
Failings allowed Covid 'to spread like wildfire' in care homes, inquiry finds
📅 20.10.2026 👁️ 4
Failings allowed Covid 'to spread like wildfire' in care homes, inquiry finds
The sixth report from Covid inquiry criticises the lack of PPE and the way patients were discharged from hospital.
Harry vill sættast við fjöl­skylduna - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Harry vill sættast við fjöl­skylduna - Vísir
Hinn 42 ára Harry, Bretaprins, hertogi af Sussex og yngri sonur Karls Bretakonungs, olli mikilli sundrung í konungsfjölskyldunni árið 2020 þegar hann ...
Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló - Vísir
Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, sem hefur verið tíður gestur í Moskvu að undanförnu hitti Selenskí í Osló í dag. Johans Gah...
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram - Vísir
Rósa gagnrýndi afstöðu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í ræðu á Alþingi. Tilefnið voru ummæli ráðherra í viðtali við Vísi í síðustu viku, þar sem A...
Lögreglan rannsakar sprengjuhótanir sem enn eru að berast
📅 20.10.2026 👁️ 5
Lögreglan rannsakar sprengjuhótanir sem enn eru að berast
Sprengjuhótanir hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum að undanförnu. Sprengjusveit sérsveitar var kölluð út í síðustu viku vegna hótana sem ...
Sé skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
Sé skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir
Hún segir vanta fleiri fangelsispláss og það fáist með byggingu Stóra-Hrauns en einnig séu aðstæður í íslenskum fangelsum þannig í dag að ekki sé hægt...
Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis - Vísir

Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs
📅 20.10.2026 👁️ 5
Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs
Sífellt fleiri Repúblikanar snúast gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar kemur að uppbyggingu gagnavera þar vestra. Samhliða hefur óánægja kjósend...
Stefna á að hefja leit í nóvember - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 5
Stefna á að hefja leit í nóvember - Vísir
Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir í samtali við fréttastofu að ákvörðun verið tekin um fyrstu fasa leit að líkamsleifum ...
Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni