Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti hans hefur nú leitt í ljós að hann svipti sig lífi.
Niðurstaðan kom fram við rannsókn dánardómstjóra í East Sussex á Englandi á mánudag. Dietz lést 7. júní síðastliðinn. Frá þessu greina meðal annars The Sun og Irish Examiner.
Hafði glímt við langvarandi kvíða
Við rannsóknina kom fram að Dietz hefði um árabil glímt við kvíða og verið í sambandi við lækni og geðheilbrigðisstarfsfólk.

Systir hans, Helena Prentice, lýsti honum sem afar greindum, hlýjum og samúðarfullum manni. Mannúðarmál hefðu verið honum hugleikin alla tíð, sérstaklega málefni Palestínu, og þjáningar saklauss fólks tekið mjög á hann.
„Sjötti meðlimur hljómsveitarinnar“
Dietz hóf samstarf við Fontaines D.C. árið 2016, áður en fyrsta platan, Dogrel, kom út.
Þegar hljómsveitin tilkynnti andlát hans í júní sögðust liðsmenn vera niðurbrotnir. Hann hefði staðið með þeim frá upphafi og verið „sjötti meðlimur hljómsveitarinnar“.
Þeir minntust einnig réttlætiskenndar hans og sögðu hans ávallt verða saknað.
Fontaines D.C. er af mörgum talin vera ein albesta tónleikasveit í Evrópu um þessar mundir og hér að neðan má heyra þá renna í gegnum smellin Boys in The Better Land á KEX hostel í Reykjavík þegar þeir spiluðu á Airwaves árið 2018.