Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyrirhuguð.
Hann mátti þola mjög harða gagnrýni í franska þinginu í dag vegna óeirðanna sem geisað hafa undanfarið og náðu hámarki á laugardag.
Stjórnarandstöðu finnst viðbrögð ríkisstjórnarinnar ekki nógu góð. Lecornu viðurkenndi að ekki nógu vel hefði verið staðið að löggæslu undanfarið og hét því að bætt yrðu verulega í.
Lecornu tilkynnti í morgun að útgöngubann í frönskum borgum tæki aftur gildi í kvöld. Hann sagði útgöngubann um liðna nótt hafa skilað tilætluðum árangri.
Hann sagði fyrir þinginu síðdegis að öfgavinstrihópar hneigðust til uppreisna í landinu og hygðust nota mótmæli og óeirðir til að fá sínu framgengt.
Þjóðfélagssástandið í Frakklandi er, má segja, við suðumark eftir mótmæli síðustu daga og vikna, ekki síst vegna þess hve stutt er til kosninga. Forsetaframbjóðendur þvert á hið pólitíska svið hafa reynt að gera sér mat úr óeirðunum.
Útgöngubannið í nótt gilti um Lýðveldistorg í höfuðborginni og Les Halles-hverfi sömuleiðis. Samkomubann var í gildi nærri Champs-Elysses, við nokkrar opinberar byggingar og á lestarstöðvum. Lögreglan í París hefur bannað vegfarendum að hafa í fórum sér flöskur og brúsa með eldsneyti, eftir að óeirðarseggir kveiktu í verslunum og bílum um helgina.