Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með því að áratugagamlir dómar eigi ekki sjálfkrafa að útiloka hæft fólk frá því að veita stuðning. Bann vegna kynferðisbrota héldist óbreytt.
Breytingin er lögð til eftir ábendingar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV. Stofnunin vill að sömu reglur gildi um stuðningsfjölskyldur hvort sem þær starfa samkvæmt barnaverndarlögum eða lögum um þjónustu við fatlað fólk. Samkvæmt barnaverndarlögum sæta önnur brot en kynferðisbrot þegar einstaklingsbundnu mati.
Í greinargerð draganna segir að núverandi bann hafi í einhverjum tilvikum leitt til óeðlilega strangra niðurstaðna við afgreiðslu rekstrarleyfa, meðal annars fyrir stuðningsfjölskyldur.
Geta átt erfitt með að greina frá ofbeldi
Einhverfusamtökin telja samræmingu laganna ekki nægjanleg rök fyrir því að aflétta banninu. Fyrst þurfi að meta áhrif breytingarinnar á öryggi fatlaðs fólks.
Í umsögn samtakanna, sem er dagsett í dag, segir:
„Einhverfusamtökin telja ekki forsvaranlegt að aflétta banninu án ítarlegs rökstuðnings og mats á áhrifum breytingarinnar á öryggi þjónustunotenda. Samræming við önnur lög nægir ekki.“
Samtökin benda á að fólk sem nýtir þjónustuna geti verið mjög háð aðstoð annarra. Sumir hafi takmarkaða möguleika á að segja frá ofbeldi eða leita sér hjálpar, meðal annars vegna þess að þeir hafi lítið eða ekkert talmál.
Verði breytingin gerð telja samtökin nauðsynlegt að setja bindandi viðmið um hæfismat, tryggja skýra ábyrgð á ráðningum og virkt eftirlit. Öryggi fólks megi ekki ráðast af ólíkum viðmiðum einstakra vinnuveitenda.
Stjórnendur meti hæfi umsækjenda
Breytingin er hluti af víðtækari endurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Hún næði bæði til ráðninga og útgáfu rekstrarleyfa.
Samkvæmt greinargerðinni myndu stjórnendur eða leyfisveitandi meta hæfi fólks með aðra refsidóma en kynferðisbrotadóma. Við matið ætti að skoða hvers konar starf viðkomandi sækti um, alvarleika brotsins og aðstæður þess, hversu langt væri síðan það var framið og lífshætti og framgöngu viðkomandi eftir afplánun.
Ráðuneytið leggur áherslu á að breytingin eigi ekki að skerða öryggi og vernd fatlaðs fólks.
Í umsögn GEV fagnar stofnunin því að ábendingar hennar hafi leitt til tillögunnar. Hún bendir þó jafnframt á að reglugerð um stuðningsfjölskyldur samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk hafi enn ekki verið sett. Því vanti leiðbeiningar um hvaða skilyrði slíkar fjölskyldur þurfi að uppfylla áður en rekstrarleyfi sé veitt.