Rósa gagnrýndi afstöðu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í ræðu á Alþingi. Tilefnið voru ummæli ráðherra í viðtali við Vísi í síðustu viku, þar sem Alma sagði ekkert fjárhagslegt svigrúm hjá Sjúkratryggingum til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum.
Spyr hvort boðlegt sé að hafna erindinu í fjölmiðlum
Rósa sagði biðlista í heilbrigðiskerfinu lengjast hratt og þörfina fyrir þjónustu aukast með fólksfjölgun og hækkandi aldri þjóðarinnar. Nauðsynlegt væri að létta álagi af Landspítalanum og fjölga tækifærum sem gætu laðað heilbrigðisstarfsfólk til landsins.
Hún vísaði til umræðu í ríkissjónvarpinu þar sem heilbrigðisráðherra, forstjóri Landspítalans og fleiri hefðu rætt stöðuna. Þar hefði verið lögð áhersla á valfrelsi og samstarf til að nýta fjármagn betur og bæta þjónustu.
Í því ljósi skyti skökku við að ráðherra hefði afskrifað það sem Rósa kallaði „nýtt og öflugt framtak sem getur gagnast kerfinu og fólkinu í landinu“.
Rósa sagði erindi aðstandenda Litla spítalans enn á frumstigi, í greiningu og frumskoðun hjá Sjúkratryggingum. Óskað væri eftir greiðsluþátttöku ríkisins þar sem það ætti við. Hún sagðist vonast til að ráðherra hefði ekki látið „rekstrarformið blinda sýn“.
„En er það boðlegt, virðulegur forseti, að ráðherra hafni slíku erindi í fjölmiðlum á meðan það er í réttu stjórnsýslulegu ferli hjá undirstofnun ráðuneytisins?“
Ráðherra sagði smáslys ekki meginvandann
Í viðtalinu við Vísi sagði Alma að hvorki lægi fyrir samningur um kaup ríkisins á þjónustu Litla spítalans né vilyrði um greiðsluþátttöku. Þeir fjárlagaliðir Sjúkratrygginga sem tengdust þjónustunni væru í miklum halla.
Hún vísaði jafnframt til tveggja skýrslna um bráðaþjónustu, frá 2022 og 2024, þar sem ekki hefði verið mælt með slíku smáslysaúrræði. Meginvandi bráðamóttöku Landspítalans hefði tengst því að ekki væri hægt að útskrifa aldraða sjúklinga.
Þá þyrfti að gæta að áhrifum nýrrar þjónustu á mönnun opinberra stofnana. Ef ríkið keypti þjónustuna þyrfti að fara fram opið innkaupaferli með útboði eða auglýsingu.
Vilja brúa bil í þjónustunni
Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks.
Í viðtali við Vísi í síðustu viku sagði Guðrún markmiðið að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu.
Meðal áherslna væri að fólk með langvinna sjúkdóma fengi eftirlit, meðferð og ráðgjöf á einum stað.
Aðstandendur vildu meðal annars laða heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum. Stefnt væri að því að heilbrigðisstarfsfólk yrði meirihlutaeigendur.