Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga niður í fólki. Þegar stjórnvöld afgreiði upplýsingar með þessum hætti eigi almenningur að krefjast þess að útskýrt sé nákvæmlega hvað sé rangt og hvers vegna.
Þetta kemur fram í viðtali Arnþrúðar Karlsdóttur við Ögmund í Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu. Þar gagnrýndi hann að ásakanir um rangar upplýsingar kæmu í stað efnislegrar umræðu.
Ekki nóg að kalla eitthvað falsfréttir
Ögmundur líkti notkun hugtakanna við sleggju sem hægt væri að beita til að þagga niður í fólki. Gagnrýni hans beindist sérstaklega að því þegar orðið upplýsingaóreiða væri látið nægja sem svar, án þess að farið væri yfir fullyrðingarnar sem um ræddi.
Að hans mati ætti fólk að kalla eftir skýringum þegar ráðherrar eða aðrir fulltrúar stjórnvalda segðu eitthvað vera falsfréttir. Þeir þyrftu að tilgreina hvað væri rangt svo hægt væri að ræða það efnislega.
Segir upplýsingar um heimsmálin einhliða
Aðspurður hvort íslenskir fjölmiðlar gæfu almenningi nægilega ítarlega mynd af heimsmálunum svaraði Ögmundur neitandi. Hann sagði upplýsingarnar víða einhliða og vandann ekki bundinn við Ísland.
Fjölmiðlar störfuðu innan pólitísks og efnahagslegs umhverfis sem hefði áhrif á upplýsingaflæðið. Sjálfstæðir miðlar og einstaklingar væru farnir að fylla í eyður í umfjöllun hefðbundinna fjölmiðla, þótt það þýddi ekki að allt sem þeir birtu væri rétt.
Ögmundur tók jafnframt fram að mikið væri um rangar upplýsingar og bull í opinberri umræðu. Það væri ástæða til að skoða einstakar fullyrðingar og takast á um sannleiksgildi þeirra, í stað þess að nota þetta hugtak til að loka á alla umræðu.