Hinn 42 ára Harry, Bretaprins, hertogi af Sussex og yngri sonur Karls Bretakonungs, olli mikilli sundrung í konungsfjölskyldunni árið 2020 þegar hann og Meghan Markle ákváðu að afsala sér öllum konunglegum tignum og skyldum og flytja til Kaliforníu. Parið hefur síðan þá verið ansi gagnrýnið á fjölskylduna.
Harry hefur átt lítil samskipti við eldri bróður sinn, Vilhjálm Bretaprins, og fjölskyldu hans og hitti föður sinn í fyrsta skiptið nýverið eftir margra ára sambandsleysi.
Harry flutti nýverið aftur til Bretlands með Meghan og börnum þeirra tveimur og var til viðtals í tímaritinu GQ, sem var tekið upp í New York í september og birtist í dag, þar sem hann lýsti yfir vilja til að ná sættum.
Harry sagðist skilja áhuga fólks á konungsfjölskyldunni sérstaklega í ljósi deilnanna milli meðlima hennar því margir tengi við slíkt.
„Það eru deilur milli systkina, brotin sambönd milli barna og foreldra, barna og annars foreldris,“ sagði hann í viðtalinu.
„Sumir vilja ekki að það gangi upp. En ég vil að það gangi upp,“ sagði hann um sitt eigið samband við fjölskylduna.
„Með allt sem er í gangi í heiminum er mikilvægast að sættast, það er lykillinn,“ sagði hann jafnframt.
„Ör vara að eilífu. En skynjun þín og hugarfar þitt gagnvart þessum hlutum, að sleppa takinu af fortíðinni, það er eitthvað sem hvet alla til að gera.“
„Ef það [eru] ákveðnir hlutir úr fortíðinni sem hafa áhrif á þig dagsdaglega getur verið erfiðara að sleppa tökunum af því. En fyrir mig er nógu mikið drama í heiminum og í lífum fólks til að halda áfram deilum við fjölskylduna,“ sagði hann. „Það er ekki þess virði.“
Deilur innan fjölskyldunnar má rekja aftur til ákvörðunar Harrys og Meghan í ársbyrjun 2020 þegar þau tilkynntu að þau myndu hverfa úr framlínu konungsfjölskyldunnar, afsala sér konunglegum tignum sínum og skyldum og flytja til Bandaríkjanna.
Árið síðar færðist meiri harka í deilurnar þegar parið fór til Opruh Winfrey og sagði að ónefndur meðlimur konungsfjölskyldunnar hefði lýst yfir áhyggjum af húðlit ófædds frumburðar parsins en Markle er hörundsdökk. Jafnframt sagði Markle að fjölskyldan hefði skapað svo rasískt andrúmsloft að hún hefði íhugað sjálfsvíg meðan hún gekk með fyrsta barn þeirra.
Sjá einnig: Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta
Harry lýsti því einnig yfir í heimildarmynd um líf sitt á Netflix að það væri „risastór ómeðvituð slagsíða“ innan konungsfjölskyldunnar. Jafnframt gagnrýndi hann konungsfjölskylduna þó nokkuð í ævisögu sinni, Spare, sem kom út 2023. Hann greindi hins vegar frá því á síðasta ári að hann vildi grafa stríðsöxina við fjölskyldu sína og er greinilega enn í sáttahug.