Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, sem lét lífið, ásamt eiginmanni sínum og dóttur, í fellibyl á eyjunni Jamaíka árið 1951. Ragna var dóttir kaupmannsins Gunnlaugs Fossbergs en verkfæraverslunin Fossberg sem hann stofnaði árið 1927 er enn í rekstri í dag, undir merkjum Fagkaupa ehf.
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“