Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, sem hefur verið tíður gestur í Moskvu að undanförnu hitti Selenskí í Osló í dag. Johans Gahr Støre. forsætisráðherra Noregs, og Alexander Stubb, forseti Finnlands, funda einnig með Selenskí þar.
„Við höldum öllum samskiptum opnum sem geta leitt til friðar,“ skrifaði Selenskí á samfélagsmiðli skömmu eftir komuna til Noregs.
Fundurinn er haldinn á umrótatíma í samskiptum Bandaríkjastjórnar við úkraínsk stjórnvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað í síðustu viku að gera samning við Rússa um kaup á olíu, nokkuð sem Bandaríkjastjórn hefur þrýst á önnur ríki að gera ekki um margra mánaða skeið. Þá ákvað hann að framfylgja ekki refsiaðgerðum gegn Rússum sem Bandaríkjaþing samþykkti í haust.
Trump hefur jafnframt deilt hart á Selenskí og sagt að Úkraínumenn ættu að velja sér annan forseta.
Á sama tíma hafa Úkraínumenn fengið takmarkaðan aðgang að gervihnattaupplýsingum, sem Bandaríkjamenn hafa séð þeim fyrir, sem hafa hjálpað þeim að verjast rússneskum sjálfsprengidrónum. Úkraínumenn hafa einnig kvartað undan því að fá ekki lengur viðvaranir um skotflaugaskot Rússa.
Einnig hafa borist fréttir af því að Bandaríkjamenn hafi komið í veg fyrir að bandalagsríki Úkraínu sendi þangað skotfæri í bandarískt Patriot-loftvarnakerfi þrátt fyrir að þegar sé búið að greiða fyrir þau.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði að Bandaríkjastjórn héldi eftir aðstoð við Úkraínu. Hann er nú í opinberri heimsókn til Indlands.
„Það hefur ekki verið gefin út nein meðvituð pólitísk tilskipun um að skaða Úkraínu,“ sagði Rubio.