Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.
Fórnarlamb mannsins, kona, hlaut alvarlega áverka.
Í rökstuðningi dómsins fyrir sýknunni segir að konan hafi, meðal annars, samþykkt í skilaboðum að maðurinn beitti sig hörku í kynlífi.
Niðurstöður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna gefa til kynna að mun algengara sé að yngri konur séu beittar kynferðisofbeldi.
Rannsakandi óttast að búið sé að normalísera ofbeldi sem hluta af kynlífi.
Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
Maðurinn hafði verið sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi fyrir ofbeldi gegn konunni.
Í ákæru er því meðal annars lýst að hann hafi slegið konuna í andlitið, þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar, tekið hana hálstaki og haldið kodda yfir andliti hennar.
Konan hlaut alvarlega áverka. Hún var meðal annars rifbeinsbrotin, með yfirborðsáverka á höfði, tognuð í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind og tapaði heyrn.
Landsréttur klofnaði í afstöðu sinni og tveir karlkyns dómarar sýknuðu manninn. Þriðji dómarinn, kona, skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta dóm héraðsdóms.
Meirihlutinn taldi ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni þar sem hún hefði samþykkt, í samskiptum við manninn á Instagram, að beita mætti hana hörku í kynlífi.
Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja sýknudómnum til Hæstaréttar.
Vilja óháða úttekt á meðferð kynferðisbrotamála
Dómur Landsréttar hefur vakið hörð viðbrögð.
Um fjögur þúsund hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem skorað er á Alþingi og dómsmálaráðherra að beita sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar, meðal annars með tilliti til birtingarmynda ofbeldis.
Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar – samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, segir dóm Landsréttar senda ákveðin skilaboð út í samfélagið: Að samþykki fyrir harkalegu kynlífi sé á sama tíma samþykki fyrir ótakmörkuðu ofbeldi.
Landsréttur sé með sýknudómnum að segja að harkalegt kynlíf sé ekki aðeins málsvörn heldur útskýring á ofbeldi gegn konu í kynferðisbrotamáli.
Aðstandendur undirskriftarsöfnunarinnar segja að kraftur sé í samstöðunni og það sé kominn tími til að gera eitthvað. Þau vekja sérstaka athygli á því að eini kvenkyns dómarinn í Landsrétti, sem dæmdi í málinu, hafi skilað inn sér minnisblaði og viljað staðfesta dóm héraðsdóms.
Yngri konur þrisvar sinnum líklegri til að greina frá kyrkingu
Nýjar niðurstöður úr rannsókninni Áfallasaga kvenna benda til þess að birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn konum séu að breytast.
- Konur á aldrinum 23–34 ára eru þrisvar sinnum líklegri til að greina frá þrengingu að öndunarvegi í kynlífi án samþykkis en konur í eldri aldurshópum.
- 7% kvenna hefur verið byrlað og mun líklegra er að yngri konum sé byrlað heldur en eldri.
- 25% kvenna hafa fengið sendar óvelkomnar kynferðislegar myndir eða skilaboð og 18% hafa fengið óvelkomnar beiðnir um kynferðislegar myndir af sér.
- 3% kvenna segja að kynferðislegum myndum af þeim hafi verið dreift til annarra án samþykkis þeirra.
- 4% segja að tekið hafi verið upp myndband af þeim í kynlífi án þeirra samþykkis.
Samkvæmt niðurstöðunum er mun algengara að yngri konur séu beittar kynferðisofbeldi.
Dómstólar að normalísera nýjar birtingarmyndir
Edda Björk Þórðardóttir er ein þeirra sem standa að baki Áfallasögu kvenna. Hún er dósent í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og klínískur sálfræðingur.
Hún segir ljóst af niðurstöðunum að yngri konur séu oftar beittar kynferðisofbeldi.
„Og mögulegar skýringar á því eru ofbeldi í klámi og einhvern veginn normalísering í þáttum, bíómyndum, samfélagsmiðlum, þar sem er verið að kyrkja í kynlífi.“
Þátttakendur rannsóknarinnar voru um 15 þúsund og niðurstöðurnar sýna þróun í þá átt að ofbeldi þyki eðlilegur hluti af ákveðnum samskiptum.
Edda segir það áhyggjuefni að dómstólar sjái ekki að það sé grundvallarmunur á að samþykkja tilteknar kynferðislegar athafnir og svo að veita einhverjum ótakmarkað leyfi til að beita sig ofbeldi.
Hún segir að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hafi kallað eftir því að nýjar birtingarmyndir kynferðisofbeldis verði rannsakaðar betur.
Óttast normalíseringu á ofbeldi í kynlífi
Edda óttast að búið sé að normalísera ofbeldi sem hluta af kynlífi.
Heldurðu að löggjöfin og dómsvaldið séu að fylgja eftir þessari þróun, þessari hröðu þróun sem virðist vera að eiga sér stað?
„Svona út frá þessum dómi Landsréttar þá veldur þetta manni verulegum áhyggjum. Það að valda einhverjum skaða, af því það á sér stað í kynlífi, af hverju er það í lagi?“
Edda telur að auka þurfi fræðslu um afleiðingar ofbeldis og vekja athygli á hve algengt kynferðisofbeldi gegn ungum konum er orðið.
Kynferðisofbeldi hafi bæði líkamlegar og andlegar afleiðingar.
Edda segir nauðsynlegt að koma á samfélagslegu átaki til að snúa þróuninni við. Að því átaki þurfi skólar, heimili og stjórnvöld að koma.
„Við þurfum að hafa þetta hluta af kynfræðslu, eins og með kyrkingar í kynlífi. Þetta á aldrei að gera og þetta getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.“