„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son með unnustu sinni Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur. Hann tekur fram að íbúðin sé 103,2 fermetrar að stærð og með þremur svefnherbergjum og deilir hlekk af fasteignavef Vísis.
„Með aukinni lofthæð, rúmgóðri verönd, heitum potti og stæði í lokaðri bílageymslu. Endilega kíkið á eignina og deilið áfram ef þið þekkið einhvern sem gæti verið að leita sér að nýju heimili,“ skrifar Kristófer sem er með þekktustu körfuboltaköppum landsins. Uppsett verð fyrir íbúðina eru 93,5 milljónir króna.