Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem létust var eins árs gamalt barn sem sat í barnavagni. Myndirnar af barninu hafa vakið mikla reiði, meðal þeirra sem deilir myndunum er Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi, en hann segir:„Hryllingurinn heldur áfram. Nú i almenningsgarði við kaffihús í Kharkiv. Ekki víkja ykkur undan heldur skoðið þessar myndir og hafið í huga að til eru þeir sem vilja verðlauna þessa hegðan,“ segir Friðrik.
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“