Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fangelsinu við Stóra-Hraun.
Að stuttri athöfn lokinni var boðað til samkomu í veislusal Byggðasafns Árnesinga þar sem Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar og Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri héldu tölu.
Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun og bættri aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum, efla öryggi og skapa betri skilyrði fyrir menntun, endurhæfingu og meðferð.
Framkvæmdinni verður skipt í tvo áfanga. Í þeim fyrri verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og aðalbyggingu. Áætlaður kostnaður við fyrri hlutann er 17,8 milljarðar og eru þær framkvæmdir fjármagnaðar að fullu.