Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þessari rómantísku stórborg.
Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu?
Ég er að læra arkitektúr í Listaháskóla Íslands og ákvað að taka annað árið mitt í skiptinámi í París. Ég er sjálf hálffrönsk og altalandi svo að mér fannst þetta skemmtilegt tækifæri til að kynnast landinu betur og prófa að búa þar. Svo heillaði París mig auðvitað líka.
Hvað ertu að gera þar?
Ég er að læra arkitektúr í École national supérieure d’architecture de Paris Malaquais.
Hefurðu búið annars staðar erlendis?
Ég fæddist í London og bjó þar þangað til ég var fimm ára gömul. Síðan fór ég í lýðháskóla til Danmerkur eftir að ég útskrifaðist úr menntaskóla.
Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér?
Venjulegur dagur hjá mér byrjar yfirleitt á því að ég fæ mér ódýrt kaffi og labba svo í skólann. Ég er mjög heppin að búa í göngufjarlægð frá skólanum sem er staðsettur í einu fallegasta hverfi Parísar, Saint-Germain-des-Prés, þannig að göngutúrinn er alltaf skemmtilegur.
Síðustu vikur hafa þó verið aðeins öðruvísi en venjulega þar sem nemendur skólans hafa staðið fyrir mótmælum og skólinn því verið lokaður síðustu þrjár vikurnar. Það hefur verið mikil spenna í loftinu í París og sérstaklega meðal námsmanna. Það er því mjög sérstök upplifun að vera námsmaður hér um þessar mundir.
Annars labba ég mikið um borgina og hitti vini. Ég elska að prófa nýja staði, hvort sem það eru kaffihús, veitingastaðir eða bara einhverjir skemmtilegir staðir sem ég rekst á á röltinu.
Hvað er skemmtilegast við lífið úti?
Vá, mér finnst allt vera svo skemmtilegt hérna úti, alveg sama hvað það er. Það er svo mikið líf á hverju horni og ég er innblásin af öllu sem ég sé. Mér finnst skemmtilegast að vera sjálfstæð og fá að upplifa lífið í stórborg þar sem enginn er að pæla í mér og allir eru að gera sitt. Það er svo mikil tilbreyting frá Íslandi.
Ég elska að uppgötva nýja staði hvort sem það eru kaffihús, ný hverfi, almenningsgarðar eða veitingastaðir. Mér finnst líka eins og ég sé orðin miklu spenntari fyrir náminu og öllu því sem er framundan eftir að ég flutti hingað.
En ég held að mér finnist skemmtilegast að geta labbað hvert sem er og hlustað á tónlist.
En mest krefjandi?
Það getur verið krefjandi að búa ein langt frá fjölskyldu og vinum. Maður áttar sig kannski ekki átta sig á því fyrr en maður flytur út hvað það er dýrmætt að hafa fólkið sitt nálægt. En á sama tíma finnst mér ég mjög heppin að eiga svona marga til að sakna.
Svo er auðvitað líka krefjandi að geta ekki eytt öllum peningunum mínum í föt og þurfa allt í einu að kaupa nauðsynjavörur líka.
Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?
Kannski helst frelsistilfinningin sem fylgir því að búa ein í útlöndum. Eins æðislegt og Ísland er þá hafa augun mín algjörlega opnast fyrir öllum þeim tækifærum sem eru í útlöndum og hvað hversdagsleikinn getur verið skemmtilegur. Svo finnst mér ótrúlega gaman að kynnast nýju fólki og allri þeirri fjölbreyttu menningu sem París hefur upp á að bjóða.
Síðan fékk ég tækifæri á að vinna á tískuviku í París með Hildi Yeoman sem var mikill draumur fyrir mig. Það var ótrúlega gaman að fá innsýn í tískuheiminn og fá að sjá hvernig þetta fer allt fram.
Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju?
Le Marais er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þar er mikið af ungu fólki og oft skemmtilegir viðburðir tengdir list. Svo er líka endalaust af fallegum vintage-búðum þar.
Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?
Uppáhalds kaffihúsið mitt ef mig langar í eitthvað næs er FCC – Flâneur Coffee Club.
Það er líka svona go-to byrjunarreiturinn minn áður en ég fer að versla. Uppáhalds veitingastaðurinn minn er svo Restaurant de la Mosquée de Paris. Þar fær maður ótrúlega góðan marokkóskan mat í fallegri mosku.
Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?
Draumadagurinn væri að vakna og fá mér kaffi, hitta svo vini mína og prófa einhvern nýjan veitingastað. Rölta í vintage-búðir og enda daginn við Canal Saint-Martin með ódýrt hvítvín og kartöfluflögur.
Hefurðu fundið fyrir heimþrá?
Já, ég hef alveg fundið fyrir heimþrá. Þá finnst mér best að koma mér út úr húsi og fara aðeins út í borgina. Svo er ég líka mjög dugleg að hringja heim og heyra í fólkinu mínu.
Hvað er fram undan?
Núna er ég bara að vona að skólinn opni aftur og kennslan fari af stað. Síðan verð ég áfram í París fram á næsta sumar, eða þangað til í júlí. Þá fer ég aftur heim til Íslands og klára bachelorinn minn í Listaháskólanum.
Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?
Það sem hefur kannski komið mér mest á óvart er hvað það er í raun einfalt að flytja út og breyta hversdagsleikanum sínum. Maður heldur oft að þetta sé endalaust vesen og mikið mál en svo reddast þetta alltaf einhvern veginn. Maður kynnist nýju fólki og lærir líka að treysta meira á sjálfan sig, sem hefur verið mjög góð tilbreyting fyrir mig.
Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti?
Já, ég lenti í því að sjá mús hlaupa um í íbúðinni minni og hún bjó heima hjá mér í tæplega viku þangað til hún festist í gildrunni minni. Þetta var mjög stórt verkefni. fyrir mig þar sem ég gat ekki beðið einhvern um að hjálpa mér með þetta eins og ég hefði líklega gert heima.
Músin drapst ekki við að festast í gildrunni þannig að ég þurfti að drepa hana með pönnu.
Síðan labbaði ég fram hjá Jennifer Lawrence eftir skóla.
Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig?
Ég elska Ísland og hlakka mikið til að koma heim en ég finn samt strax að mig langar aftur út eftir útskrift. Mér finnst bara svo gaman að búa í stórborg og upplifa eitthvað. nýtt. Ég sé alveg fyrir mér að fara í framhaldsnám erlendis en hef enga hugmynd um hvar. Mig langar eiginlega að prófa að búa alls staðar þannig að það verður erfitt að velja.