Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fólk er hvatt til þess að kynna sér kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á hverjum áfangastað.
„Hafa ber hugfast að reglur og/eða leiðbeiningar staðaryfirvalda geta breyst hratt,“ segir í færslu ráðuneytisins á Facebook.
Viðvaranir utanríkisráðuneyta annarra landa má sjá á síðu Stjórnarráðsins.
Íslendingar í vanda erlendis geta leitað til Borgaraþjónustunnar í gegnum tölvupóstfangið hjalp@utn.is eða neyðarsímann +354 545 0 112.
Víða í Evrópu geisa mótmæli þar sem ungir námsmenn sem mótmæla meðal annars húsnæðisvanda, háum framfærslukostnaði og háum námsgjöldum ganga fremstir í fylkingu.