Fyrst var íbúum í Longyearbyen á Svalbarða ráðið frá því að drekka vatn úr krana í september í fyrra þegar styrkur mangans í því mældist tuttugu og fimmfalt hærri en lýðheilsuviðmið.
Á endanum dró úr manganmenguninni en fyrr á þessu ári greindist súlfat og nikkel í vatninu. Viðvörunin er því enn í gild, að því er segir í frétt The Guardian.
Kranavatnið í bænum kemur úr Isdammen, stöðuvatni í grenndinni. Sérfræðingar telja að þungmálmar komist í vatnið úr berggrunni vegna þiðnunar sífrera.
Berggrunnurinn er úr leirsteini sem inniheldur járnkís, sem gengur stundum undir nafninu glópagull. Þegar steinefnið kemst í snertingu við vatn og súrefni myndast sýra sem leysir þungmálma út í stöðuvatnið.
Hnattræn hlýnun er mun hraðari á norðurslóðum en annars staðar á jörðinni. Þannig hefur meðalhiti að hausti hækkað um allt að fjórar gráður á áratug á Svalbarða.
Brugðist hefur verið við ástandinu með því að koma upp vatnsgeymi með hreinsuðu vatni sem er ókeypis fyrir íbúa. Bæjarstjórinn segir að mögulega þurfi að finnum bænum nýtt vatnsból. Einnig kemur til greina að setja upp ný hreinsunarkerfi fyrir vatnið úr Isdammen og að hafa afsöltunarbúnað til þess að vinna drykkjarvatn úr sjó til vara.