Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar á Laugum var afturkallað eftir kæru fimm íbúa. Fyrirtækið bíður úrskurðar um bráðabirgðaleyfi.
Samherji er stærsti einkarekni vinnustaðurinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Katrín Sigurjónsdóttir, ráðinn sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, hefur ítrekað mikilvægi starfseminnar í sveitarfélaginu. Fyrirtæki í eigu hennar og eiginmanns hennar hefur selt Samherja vörur um árabil.
Ítarlegt viðtal við Katrínu má sjá hér neðst í fréttinni.
Komst upp þegar íbúar spurðust fyrir
Upp komst um viðskiptatengslin þegar Haraldur Sverrisson, einn kærendanna, óskaði eftir upplýsingum um möguleg hagsmunatengsl Katrínar við Samherja og fékk upplýsingar um viðskiptasamband fyrirtækis Katrínar, Samleiðar, við Samherja.
Katrín segir sveitarstjórnina hafa verið meðvitaða um tengsl hennar frá fyrstu skrefum ráðningarferlisins og ef hún hefði talið sig vanhæfa hefði hún vakið máls á því.
Áður fyrr var Katrín sveitarstjóri á Dalvík, þar sem Samherji rekur aðra fiskþurrkun. Hún segir sveitarstjórnina þar hafa verið meðvitaða um tengslin.
Samleið var með um 70 milljónir í tekjur í fyrra. Katrín giskar á að fimm til átta prósent komi frá Samherja. Ef fiskþurrkun yrði hætt á Laugum hefði það ekki afdrifarík áhrif á fyrirtækið.
Til skoðunar er hjá sveitarstjórn hvort Katrín víki framvegis af fundum þegar málefni Samherja á Laugum eru rædd.