Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstu vikum. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvort hægt sé að koma til móts við þá gagnrýni, meðal annars hvort passinn gildi á fleiri staði.
Í drögum að frumvarpinu er lagt til að erlendir ferðamenn greiði 4.500 krónur fyrir náttúrupassa sem gildir í eitt ár og veitir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Utan háannatíma, frá fyrsta nóvember til 31. maí, kostar passinn þrjú þúsund krónur.
Þetta á að taka gildi 1. maí og skila ríkinu sex til sjö milljörðum króna á ári í tekjur.
Viðbúin óánægja hjá ferðaþjónustunni
Fjölmargar athugasemdir bárust við frumvarpsdrögin í samráðsferli. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu eru almennt andvígir áformunum af ótta við að þau veiki samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu með tilheyrandi fækkun ferðamanna. Þetta bætist ofan á önnur gjöld sem nú þegar eru innheimt, svo sem gistináttagjald og innviðagjald.
Sveitarfélögum á Suðurlandi þykir sérstaklega að sér vegið, enda umræddir staðir allir á Suðurlandi. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að eftir samtöl, meðal annars við ferðaþjónustuna, hafi verið ákveðið að einskorða gjaldið við þessa þrjá staði. „Það er búið að tala um þetta í áratug, að fara svona leið en það hefur ekkert verið gert og á meðan vex ferðaþjónustan þannig að þetta er virkilega flókið verkefni. Þrír fjölsóttustu ferðamannastaðirnir eru þessir þrír staðir sem um ræðir en þegar ég er að segja að við erum að skoða umsagnir og við erum að athuga hvort að við eigum að breyta einhverju, þá felur það auðvitað í sér meðal annars að skoða að útvíkka þetta.“
Ráðast í markaðssetningu þegar lögin verða samþykkt
Ferðaþjónustufyrirtækin Arctic Adventures og Icelandia segja að gjaldtakan geti leitt til allt að 40 prósenta hækkunar á þeirra þjónustu og fyrirvarinn er sagður of skammur, enda fyrirtæki byrjuð að selja ferðir fyrir næsta ár. Hanna Katrín segir að fyrirtækin hafi vitað af áformum stjórnvalda frá því í fyrra. „Þannig að menn hafa nú fyrirvara og geta verið með alls konar upplýsingagjöf en auðvitað er þetta líka hugsað. Þetta eru einstaka ferðamenn sem koma erlendis frá sem greiða þetta gjald. Þeir þekkja þetta nær alls staðar erlendis frá og við munum að sjálfsögðu fara á fullt í markaðssetningu í þessum málum þegar staðan er ljós.“
Hanna Katrín segir að verið sé að fara yfir umsagnirnar og enn sé of snemmt að segja til um hvort gerðar verði breytingar til að koma til móts við þær athugasemdir sem fram eru komnar.