Saksóknarayfirvöld í Danmörku hafa gefið út að mennirnir tveir hafi í gær tekið myndir af höfuðstöðvum varnarmálafyrirtækisins MyDefence á Norður-Jótlandi og síðan miðlað þeim áfram til notanda á Telegram.
Saksóknari telur að ljósmyndirnar hafi verið ætlaðar rússnesku leyniþjónustunni og að rússnesk stjórnvöld tengist þannig málinu.
Dómstóll í Álaborg úrskurðaði í kvöld mennina tvo, sem eru 18 ára og 21 árs, í þriggja daga gæsluvarðhald. Þeir neituðu sök fyrir dómi, að sögn TV2. Danska ríkisútvarpið segir að þriðji maður gangi enn laus.
Rasmus Amandusson, verjandi 21 árs mannsins, segir við TV2 að sakborningarnir séu báðir úkraínskir ríkisborgarar en að þeir hafi talað rússnesku fyrir dómi í dag. Hann sagði að ásakanirnar væru alvarlegar.
Um 10 til 15 prósent Úkraínumanna tala rússnesku að móðurmáli, aðallega í austurhluta landsins.
„Það er sjaldgæft að svona gerist. Því er mikilvægt að málið verði rannsakað svo að við vitum hvort það sé eitthvað í þessu máli,“ segir verjandinn.
Nicolai Wammen, dómsmálaráðherra Dana, segir við miðilinn að ógn frá rússneskum stjórnvöldum hafi aukist í Evrópu undanfarin ár. Hann líti málið alvarlegum augum.
„Það er þess vegna mikilvægt að ekki nokkur Dani verði að nytsamlegu fífli eða styðji með nokkrum hætti við vinnu rússnesku leyniþjónustunnar í þessu landi,“ segir Wammen við TV2.
MyDefence er tæknifyrirtæki á sviði varnarmála sem sérhæfir sig í útvarpsbylgjutækni og drónavörnum. Félagið hefur ekki tjáð sig um málið.
Í byrjun september sagði Emil Græsholm, yfirmaður hjá leyniþjónustu dönsku lögreglunnar (PET), við Berlingske að danska leyniþjónustan hefði komið upp um meint áform rússneskra stjórnvalda um að vinna skemmdarverk á dönskum varnarmálafyrirtækjum. Hann sagði Rússa setja sig í samband við danska ríkisborgara – til dæmis í gegnum Telegram, tölvuleiki eða aðra samfélagsmiðla – og síðan fá þá til að sinna því sem virtust „saklaus“ verkefni, eins og að taka myndir af fyrirtækjum.