Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu sem eru grunaðir um árásir á diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu. Árásir landtökufólks á ólífubændur eru þegar orðnar fleiri í ár en í fyrra þótt mánuður sé eftir af uppskerutímanum.
Landtökufólk hefur lengi stundað ofbeldi, áreiti og skemmdarverk gegn ólífubændum á Vesturbakkanum. Nú er uppskerutíminn hafinn og ofbeldið hefur aukist. Uppskerutímabilið varir yfirleitt langt fram í nóvember og þegar er vitað um 200 tilvik, í fyrra voru þau 185 allt tímabilið.
Fólk svipt lífsviðurværinu
Ólífutrén eru lífsviðurværi um 80-100 þúsund fjölskyldna á Vesturbakkanum. Landtökufólk stundar einnig að rífa þau upp með rótum eða brenna, sem veldur miklu fjárhagslegu tjóni og stundum sér fólk ekki annan kost en að flytja á brott.
„Þeir eru vanir að nota könnunardróna og hafa uppi á fámennum einangruðum hópum og taka þá út og ráðast á þá,“ segir Omar Qassis, háskólakennari og íbúi í Birzeit á Vesturbakkanum.
Þetta er ekkert nýtt fyrir Palestínumenn en sjaldan eru afleiðingar fyrir landtökufólkið. Það vakti því athygli í gær þegar ísraelska lögreglan handtók tíu sem eru grunaðir um aðild að árásum á evrópska diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu um helgina.
„Athyglin beinist mjög að mér af því ég er bandarískur fréttaljósmyndari og vinn fyrir The Washington Post. En ég hitti stöðugt og skráset frásagnir fólks sem hefur verið misþyrmt og oft drepið í þessu ofbeldi,“ segir Heidi Levine, ljósmyndarinn sem ráðist var á.
Þetta er þeirra saga, ekki mín, segir Levine og ávarpar forsætisráðherra Ísrael. „Það er tími til kominn að þú gerir eitthvað, herra forsætisráðherra. Ég hef flutt fréttir frá þessum heimshluta í fjörutíu ár og hef aldrei séð landið í þvílíku ástandi og það er í dag.“