Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu er eitt þeirra.
„Við, líkt og önnur sveitarfélög, stöndum náttúrulega frammi fyrir miklum áskorunum þessa dagana. Langvarandi verðbólga og hátt vaxtastig hafa sín áhrif. Og við sjáum bara fram á það að við verðum að fara í hagræðingaraðgerðir ef við ætlum að ná endum saman,“ segir Elísabet Ingunn Einarsdóttir, formaður bæjarráðs Seltjarnarnessbæjar.
„Okkur fannst rétt að byrja á okkur“
Bæjarstjórinn lagði til tíu prósenta lækkun á launum sínum og bæjarfulltrúar hafa lækkað laun sín. Nákvæmar hagræðingartölur liggja ekki fyrir en þær skipta hundruðum milljóna.
„Við þurfum að fara í frekari aðgerðir og okkur fannst rétt að byrja á okkur,“ segir Elísabet. Nefndum bæjarins var fækkað úr ellefu í sex. „Við sáum tækifæri þar til þess að auka skilvirkni og bæta bæði nýtingu tíma og fjármuna.“
Bærinn uppfylli ekki jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaga
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent bæjarstjórn bréf um ársreikning síðasta árs þar sem segir að bærinn uppfylli ekki jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaga því halli á A hluta sé rúmur milljarður á þremur árum, að því er fram kemur í fundargerð. Fyrri helming þessa árs kom bærinn út í mínus.
„Við erum svolítið á Seltjarnarnesi að miða okkur alltaf við Reykjavík og stóru sveitarfélögin hérna í kringum okkur og það gefur alveg auga leið að við getum ekki veitt nákvæmlega sömu þjónustu,“ segir Elísabet.
Endurskipuleggja á reksturinn í öllum stjórnsýslueiningum bæjarins, segir hún. Til dæmis er verið að skoða að minnka afgreiðslutíma sundlaugar og bókasafns. Búið er að kynna tvo aðgerðapakka og næstu verða kynntir á næstu tveimur vikum.
Seltjarnarnes rukkar ekki hámarksútsvar
Íbúar á Seltjarnarnesi voru rúmlega 4600 um áramótin og hefur fækkað lítillega frá 1998 samkvæmt Hagstofunni. Hins vegar eru útsvarstekjur bæjarins miðað við íbúafjölda hvað hæstar á landinu sem þýðir að hlutfall tekjuhárra í bænum er hátt. Seltjarnarnes er eitt örfárra sveitarfélaga landsins sem rukkar ekki leyfilegt hámarksútsvar.
Af hverju hækkið þið ekki útsvarið?
„Hækkun á útsvari er vissulega ein leið til þess að auka tekjurnar. En hækkun ein og sér kemur ekkert í veg fyrir að þú þurfir að fara í endurskoðun á rekstrinum.“