Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast yfir í aðra lyfjaflokka. Þar á meðal er geðrofslyfið quetiapín.
Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis fengu um 11.400 einstaklingar lyfið í fyrra, næstum tvöfalt fleiri en tíu árum áður. Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar hefur hlutfall notenda aukist um rúmlega helming. Mest hefur aukningin verið meðal 65 til 79 ára, eða um sjötíu prósent.
Quetiapín er meðal annars notað við geðklofa og geðhvarfasýki. Lyfið hefur einnig slævandi áhrif og er því stundum ávísað í mun minni skömmtum við svefnleysi, þótt sú notkun sé ekki meðal samþykktra ábendinga.
Kallar eftir frekari rannsóknum
Erik Brynjar Schweitz Eriksson, geðlæknir í heimahjúkrun hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir á Vísi vísbendingar um að quetiapín sé talsvert mikið notað við svefnvanda, meðal annars vegna þess að læknar séu í auknum mæli að hverfa frá hefðbundnum ávanabindandi svefn- og róandi lyfjum.
Hann segir hins vegar rannsóknir á notkun quetiapíns við svefnleysi af skornum skammti, einkum meðal eldra fólks. Læknar þyrftu því að nokkru leyti að reiða sig á eigin reynslu.
Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala, tekur undir með honum um að vísbendingar séu um aukna notkun lyfsins við svefnvanda og að þörf sé á frekari rannsóknum.
„Það eru ýmsar vísbendingar sem styðja þessa skoðun. Þannig að ég er sammála Erik um að þetta sé eitthvað sem þarf að kanna betur,“ segir Anna.
Getur verið jafn óheppilegt og hefðbundin svefnlyf
Anna segir erfitt að fullyrða hvort quetiapín sé heppilegri kostur við svefnleysi en hefðbundin svefnlyf. Rannsóknir séu fáar og niðurstöðurnar gefi tilefni til varúðar.
„Þær örfáu rannsóknir sem eru til, sérstaklega varðandi eldra fólk, benda til að þetta lyf sé með sambærilegar aukaverkanir eins og önnur svefn- og geðrofslyf. Þær benda til þess að lyfið sé alveg jafn óheppilegt eins og hin hefðbundnu lyf,“ segir Anna.
Hún telur jafnframt að Íslendingar reiði sig um of á lyf við svefnvanda og að leita þurfi annarra lausna.
„Við Íslendingar erum óhugnanlega mikið að leysa vandamálin með töflum. Þannig að ég myndi nú heldur vilja sjá aðrar lausnir,“ segir Anna.
Ekki vitað hversu margir fá lyfið við svefnleysi
Þrátt fyrir mikla fjölgun þeirra sem fá quetiapín liggur ekki fyrir hversu stór hluti notkunarinnar er vegna svefnvanda. Fyrirliggjandi tölur um lyfjaafgreiðslur greina ekki á milli þeirra sem fá lyfið við svefnleysi og þeirra sem fá það vegna geðsjúkdóma eða annarra einkenna.
Aðspurð um hvort bæta þurfi skráningu á því hvers vegna lyfjum er ávísað svarar Anna:
„Jú, ég held það.“