„Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innihald bréfsins fyrr en hann er kominn með fimm þúsund fylgjendur. Hann streymir öllu á samfélagsmiðlinum Tik-Tok en þetta er ekki fyrsta uppátæki Axels á miðlunum, hann komst síðast í fréttir í maí þegar hann gróf sig undir sand í Nauthólsvík í sólarhring.
Af hverju í ósköpunum ertu að þessu?
„Ég er með samfélagsmiðlaaðgang þar sem ég er búinn að vera að gera allskonar áskoranir og þetta endaði á að vera ein þeirra. Síðast var ég í 24 klukkustundir á hlaupabretti og núna langaði mig að gera eitthvað erfiðara.“
Axel segist hafa verið að horfa á kvikmynd með vinum sínum upp í bústað þegar hugmyndin að athæfinu kviknaði. Í myndinni var einhver að skríða. Axel Máni hélt af stað frá bensínstöð Orkunnar við Fitjar í Njarðvík í gærkvöldi og segist hafa farið bakveg hjá HS Veitum.
@seliking Halla eg er að koma!!🇮🇸
♬ original sound - Seliking
Og af hverju að skríða til Bessastaða?
„Það kemur í ljós þegar ég er kominn með fimm þúsund fylgjendur,“ segir Axel sem gefur ekkert upp þó þjarmað sé að honum. Hann segir hálft ár síðan hann hafi byrjað á allskyns skringilegum uppátækjum á samfélagsmiðlum.
„Einu sinni læsti ég mig inni á baðherbergi í tvo sólarhringa. Síðan var ég einu sinni blindur í viku. Bundið fyrir augun mín í 160 klukkutíma. Svo gróf ég mig í sand í sólarhring. Allt í beinni.“
@seliking Við hölfum áfram🇮🇸
♬ original sound - Seliking
Þú vilt ekkert segja mér hvað er í bréfinu?
„Ég get það ekki. Ég er í beinni!“
Hvernig er líkamlega ástandið, ég heyrði þig ræða það áðan á Tik-Tok að þú værir bólginn á höndunum?
„Hnéin á mér eru ágæt en hnúarnir eru í alvöru hakki. Ég hugsa að það sé ekkert langt í álagsbrot þar,“ segir Axel Máni. Hann ætlar þó ekki að skríða í alla nótt, um miðnætti ætlar hann að taka sér pásu.
„Þá fer ég inn í bíl og sef þar. Svo legg ég aftur af stað í fyrramálið. Ég lagði af stað í gærkvöldi um níuleytið og hætti klukkan hálf tvö. Svo byrjaði ég aftur eitt í dag, er búinn með tíu kílómetra og á 36 kílómetra aftur.“
En að leggja þetta á sig fyrir fylgjendur á samfélagsmiðlum, sumir myndu segja að þetta væri hálfklikkað?
„Skilaboðin eru þau að það er sama hversu fáránlega hluti þig langar að gera, prófaðu það bara. Það er enginn að pæla í þér.“