Ég hvet bara íbúa til að mæta niður í miðborgina og njóta dagsins og láta alls ekki verðið á sig fá. Það er ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Nóg sé um að vera í miðborginni en íbúar, atvinnurekendur og listafólk stendur að um fjögur hundruð viðburðum og teygir hátíðarsvæðið sig frá Lönguhlíð í Austurbæ, Hagatorgi í Vesturbæ og út á Granda. Hildur setur hátíðina formlega klukkan 12:30 hjá DJ Margeiri á Klappastíg og boðið verður upp á afmælisköku í tilefni 240 ára afmæli höfuðborgarinnar.
Sjá einnig: Svona verður dagskráin á Menningarnótt
Hildur hvetur fjölskyldur til að koma saman niður í bæ, enda sé Menningarnótt fjölskylduhátíð.
„Við undirstrikum auðvitað að Menningarnótt er fjölskylduhátíð og við hvetjum fjölskyldur til að koma saman niðri í bæ, njóta samveru í miðborginni og fara svo saman heim í kvöld að lokinni flugeldasýningu,“ segir Hildur.
Ókeypis skutlur aka á milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju í dag. Frá klukkan 22 verður hægt að taka strætó ókeypis frá Sólfarinu í öll hverfi Reykjavíkur og verða allir vagnar notaðir til að koma fólki heim. Auk þess verður aukin tíðni á flestum leiðum Strætó allan daginn og gildir almennt fargjald í þær.
Sjá einnig: Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu
Hildur segir prýðilega hafa gengið hvað varðar samgöngur og samstarf við lögreglu. Hún sé gríðarlega þakklát öllum sem staðið hafa að hátíðinni.
„Ég er bara gríðarlega þakklát öllum sem hafa staðið að hátíðinni og við vonumst auðvitað bara til að allt fari vel og fallega fram í dag og í kvöld og að fólk geti skemmt sér vel.“