Íranskir ríkismiðlar segja að árásir hafi verið gerðar á tvær starfstöðvar íranska hersins hvor í sinni borginni í kvöld. CNN hefur eftir bandarískum embættismanni að bandaríski herinn standi ekki fyrir neinum árásum eins og er. Þá könnuðust ísraelskir embættismenn ekki heldur við þátttöku Ísraels í árásum á Íran í kvöld.
Samkvæmt íranska miðlinum IRNA var skotið á herstöð nálægt borginni Bushehr með skotfæri af bandarísk-ísraelskum uppruna. Kjarnorkuver Írana er í útjaðri borgarinnar.
Einnig voru gerðar loftárásir á svæði sjóhersins í Konarak, samkvæmt IRNA.
Reyna að koma stríðandi fylkingum að samningaborðinu
Bandaríski herinn gerði árásir á fleiri skotmörk við strendur Írans fyrr í dag. Íranskir fjölmiðlar hafa greint frá sprengingum í borgunum Konarak og Bushehr. Írönsk stjórnvöld segjast jafnframt hafa skotið loftskeytum á bandaríska herstöð í Jórdaníu.
Sérfræðingar segja stjórnvöld í Katar og Pakistan vinna að því að ná Bandaríkjunum og Íran aftur að samningaborðinu. Áframhaldandi átök milli ríkjanna grafa þó enn frekar undan vopnahléi sem þegar stendur völtum fótum.
Þá lauk margra daga útfararathöfn vegna fráfalls æðstaklerksins Ali Khamenei í dag með bænastund og göngu. Henni var sjónvarpað frá Imam Reza-helgidóminum í borginni Mashad.