Norska knattspyrnusambandið ætlar að standa fyrir uppboði á ýmsum hlutum tengdum nýafstöðnu heimsmeistaramóti í fótbolta til stuðnings þeim sem urðu fyrir tjóni í brunanum í Drammen. Norska ríkisútvarpið greinir frá uppboðinu.
Í tilkynningu á vefsíðu norska knattspyrnusambandsins kemur fram að sambandið vilji leggja sitt af mörkum með uppboðinu og styðja við íbúa sem urðu fyrir tjóni í Drammen. Það fé sem safnast verður látið renna óskert til Drammen-sveitarfélagsins sem mun ráðstafa fénu þannig að það nýtist þeim sem á þurfa að halda.
Meðal þess sem verður á uppboðinu er ljósmynd af landsliðinu í víkingaklæðum en hver mynd er metin á um 100.000 norskar krónur eða um 1,3 milljónir íslenskra króna. Aðeins hundrað ljósmyndir eru í boði og verða þær númeraðar og áritaðar af ljósmyndaranum.
Rauð landsliðstreyja með undirskrift nærri allra í keppnisliðinu verður á uppboðinu og einnig notaðir og ónotaðir fótboltaskór leikmanna. Skópör frá Martin Ødegaard, Julian Ryerson, Kristoffer Ajer, Sander Berge og Jørgen Strand Larsen verða boðin upp sem og þrenn markmannshanskapör Ørjan H. Nyland. Nokkrir ónotaðir keppnisbúningar verða einnig á uppboðinu og heyrnartól merkt heimsmeistaramótinu.
Uppboðið hefst á morgun, þriðjudag, og stendur í sólarhring á vefsíðu norska knattspyrnusambandsins.