Tveimur byggingaverkamönnum var í dag bjargað lifandi úr göngum vatnsorkuvers í Nepal rúmri viku eftir að hamfaraflóð ollu gríðarlegu tjóni og mannskaða.
Á annað hundrað starfsmanna orkuversins er enn saknað í gangakerfinu og stjórnvöld kveðast vongóð um að finna fleiri á lífi. Björgunarlið hefur fundið alls yfir 1.250 lík og alls er yfir fimm þúsund manns saknað eftir hamfarirnar, samkvæmt nýjustu tölum yfirvalda.