Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra stendur frammi fyrir tveim mótsögnum. Önnur er pólitísk en hin stjórnskipuleg. Hvor mótsögnin um sig veldur vanhæfi Þorgerðar Katrínar í starfi utanríkisráðherra. Ofan á mótsagnirnar bætist að Viðreisn er flokkur í upplausn.
Pólitíska mótsögnin er að Þorgerður Katrín vildi ólm gera Ísland að ESB-ríki. Út á það gekk þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst. Meginröksemd utanríkisráðherra var að Bandaríkjunum væri ekki treystandi og Íslandi yrði að leita á náðir Evrópusambandsins. Þjóðin hafnaði tilmælum Þorgerðar Katrínar og neitaði að samþykkja ESB-umsókn.
Nú þegar utanríkisráðherra heldur til Bandaríkjanna „að efla viðskiptatengsl" hefur hún pólitískan ávinning að sendiförin misheppnist. Stefna utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar er að Ísland ætti fremur að loka sig inni í Evrópusambandinu en að gera tvíhliða viðskiptasamninga við Bandaríkin. Hagfelldur samningur við Bandaríkin græfi undan málflutningi Þorgerðar Katrín um að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins. Enginn samningur við Bandaríkin - eða lélegur - væri vatn á myllu utanríkisráðherra og Viðreisnar. Góður samningur kippti fótunum undan and-bandarískum áróðri Þorgerðar Katrínar og Viðreisnar síðustu misseri og ár.
Eftir ósigurinn 29. ágúst bað Þorgerður Katrín þjóðina ekki afsökunar á gönuhlaupinu til Brussel. Ráðherra lét ekki svo lítið að þakka þjóðinni mikilsverða leiðsögn í vandasömu álitamáli þar sem allir kosningabærir Íslendingar voru kallaðir í kjörklefann að segja sína skoðun. Þvert á móti tvíefldist utanríkisráðherra í þeirri viðleitni að múlbinda Ísland á klafa Evrópusambandsins. Frumvarpið kennt við bókun 35 gengur út á að lög ESB, innleidd í gegnum EES-samninginn, gangi framar íslenskum lögum. Málsmetandi lögmenn telja frumvarpið stjórnarskrárbrot.
Íslenskir embættismenn hjá ESA-eftirlitsnefndinni í Brussel hyggjast höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum gegn íslenska ríkinu til að knýja fram grundvallarbreytingu á eðli EES-samningsins frá 1993. Stjórnskipulega er Þorgerður Katrín vanhæf sem utanríkisráðherra að fara með vörn Íslands fyrir EFTA-dómstólnum. Þorgerður Katrín og Viðreisn hafa ríka hagsmuni að EFTA-dómstólinn dæmi Íslandi í óhag, líkt og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins vekur athygli á. Samt þverneitar Þorgerður Katrín að segja sig frá málinu sem utanríkisráðherra.
Þingflokkur Viðreisnar er lamaður, segir Jón Gnarr fráfarandi þingmaður flokksins. Eftir ósigurinn 29. ágúst fór ekkert uppgjör fram innan flokksins. Enginn axlaði ábyrgð á misheppnaðri kosningabaráttu og herfilegum úrslitum fyrir flokkinn. Forysta flokksins er ófær um að draga rökréttar pólitískar afleiðingar af fyrstu og einu þjóðaratkvæðagreiðslu lýðveldissögunnar sem meirihluti alþingis stóð fyrir - að kröfu Viðreisnar. Stjórnmálflokkur hefur fullt leyfi til að gjöreyða sjálfum sér, það gerðu Vinstri grænir og Píratar. En enginn stjórnmálaflokkur hefur heimild til að fórna almannahagsmunum og stjórnskipun landsins á altari pólitískrar sérvisku.
Þorgerður Katrín er í óverjandi stöðu sem utanríkisráðherra, hvort tveggja í pólitískum skilningi og stjórnskipulega. Sjái utanríkisráðherra ekki að sér og leggi fram afsögn sína verður Kristrún forsætisráðherra að grípa í taumana. Ótækt er að forsætisráðherra sjái í gegnum fingur sér er ríkir þjóðarhagsmunir eru í húfi. Sú staða er komin upp að einni valkyrju í ríkisstjórn Íslands er ofaukið.