Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti, sagði það vera afskaplega mikinn heiður að vera kjörinn í embættið. Hann hét því að vinna af festu að hagsmunum alls launafólks.
Georg Páll sagði að forseti gæti ekki verið eyland heldur byggði starf ASÍ á störfum forystu sambandsins. Hann vísaði til þess að fram undan væri kjör þriggja varaforseta sambandsins.
Hann þakkaði Arnaldi Grétarssyni fyrir baráttuna í forsetakjörinu og þakkaði Finnbirni A. Hermannssyni, fráfarandi forseta, fyrir hans störf. Báðir hlutu mikið lófaklapp. Hið sama átti við þegar Georg Páll gekk í pontu sem nýkjörinn forseti.
Nýr forseti hvatti ASÍ-félaga til að standa saman launafólki til heilla.
Georg Páll Skúlason er nýr forseti Alþýðusambands Íslands. Hann hafði betur í forsetakjöri þar sem hann atti kappi við Arnald Grétarsson.
Talningu er lokið og úrslit verða kynnt hvað úr hverju. Áður en að því kemur fer þingheimur þó yfir ályktun sem liggur fyrir þinginu.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um forsetakjörið í Alþýðusambandi Íslands.
Baráttan um forsetaembættið stóð milli Arnars Grétarssonar, sem hefur starfað við markaðssetningu og áður sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá ASÍ, og Georgs Páls Skúlasonar, formanns GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum.
Búið er að greiða atkvæði og verið er að telja þau.
Finnbjörn Hermannsson lætur af embætti. Hann varð forseti Alþýðusambands Íslands á aukaþingi í apríl 2023. Hann var þá hættur afskiptum af verkalýðsmálum en fenginn til að snúa aftur í von um að honum tækist að lægja öldur innan sambandsins. Hálfu ári áður hafði mistekist að kjósa forystu sambandsins vegna deilna á þingi þess sem leiddu til þess að frambjóðendur til helstu embætta drógu sig í hlé.