Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu á leigu fyrir bílaleigubíl og greiðslu skaðabóta vegna meiðsla sem hann varð fyrir af völdum saumnálar í bílnum. Ekki tókst að upplýsa hvernig stóð á því að saumnálin var í bílnum en bílaleigan sagðist ekkert kannast við nálina.Ferðamaðurinn var með bílinn á leigu í um viku. Hann krafðist endurgreiðslu leiguverðs að fjárhæð 69.352 krónur, greiðslu útlagðs lækniskostnaðar og 300.000 króna í miskabætur. Þá krafðist hann formlegrar afsökunarbeiðni frá bílaleigunni.
Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt