Talsverðar breytingar verða á styrkjum til rafbílakaupa frá og með 1. nóvember næstkomandi. Styrkir vegna kaupa á nýjum rafbílum lækka um 100 þúsund krónur og jafnframt verður hámarksverð þeirra bíla sem njóta styrkja lækkað úr tíu milljónum króna í átta milljónir.Morgunblaðið fjallar um þetta í dag og ræðir við Björn Víglundsson, framkvæmdastjóra sölusviðs bílaumboðsins Heklu.
Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu