Karlmaður á fertugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um nauðgun. Landsréttur sagði ekki sannað að hann hefði brotið af sér.
Maðurinn var sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi þegar réttað var yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 2,5 milljónir í bætur.
Maðurinn áfrýjaði dóminum til Landsréttar sem kvað upp sinn dóm í gær. Dómurinn klofnaði. Tveir dómarar sýknuðu manninn en sá þriðji skilaði sératkvæði og taldi rétt að sakfella hann og staðfesta fyrri dóm.
Meirihluti Landsréttar sagði ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni. Dómararnir sögðu að konan hefði samþykkt að maðurinn mætti beita hana hörku í kynlífi, meðal annars með því að slá hana og taka kverkataki. Hún hefði einu sinni notað öryggisorð og maðurinn þá brugðist við því.
Dómararnir tveir sögðu ósannað að samþykkið næði bara til þessara tveggja atriða og hvort skýr mörk hafi verið sett í upphafi.
Þriðji dómarinn taldi rétt að sakfella manninn. Konan hefði samþykkt að kynlífið mætti vera harkalegt en ekki samþykkt hvaða ofbeldisfullu háttsemi sem er. Dómarinn sem skilaði sératkvæði taldi hafið yfir vafa að maðurinn hefði beitt konuna mun meira ofbeldi en hún hefði samþykkt.