Norðurírski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Donaldson hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á börnum, þar af eina nauðgun. Þá var eiginkona Donaldson, Eleanor Donaldson, fundin sek um að aðstoða eiginmann sinn.
Stúlkurnar voru sjö ára gamlar þegar fyrst var brotið á þeim en ofbeldið stóð yfir á árunum 1985–2008. Vegna laga á Norður-Írlandi á þeim árum mun Donaldson þó líklega aðeins þurfa að sitja í fangelsi helming tímans, eða í sjö og hálft ár.
Að því gefnu að áfrýjun beri ekki árangur mun hann því vera aftur laus árið tvö þúsund þrjátíu og þrjú. Hins vegar verður hann á skrá yfir kynferðisafbrotamenn það sem eftir lifir.
Donaldson var áður formaður Lýðræðislega sambandsflokksins DPU, en það er íhaldssamur hægriflokkur sem styður áframhaldandi samband Norður-Írlands við Bretland.
Hefur ekki sýnt nein merki um iðrun
Dómurinn er þó talinn nokkuð langur en við dómsuppkvaðningu kom fram að mið hefði verið tekið af því hversu ung fórnarlömbin hefðu verið og hve aldursmunurinn á milli þeirra og Donaldson var mikill, sem og því hvað brotin spönnuðu langt tímabil.
Þá var tekið fram að Donaldson hefði staðfastlega neitað ásökununum og því hefði ekki verið hægt að milda dóminn. Hann hefði ekki sýnt nein merki þess að iðrast gjörða sinna.
Donaldsen er nú haldið í Maghaberry-fangelsinu á Norður-Írlandi en hann dvelur ekki meðal almennra fanga heldur í þeim hluta fangelsisins sem ætlaður er föngum með heilsufarsvandamál. Það er vegna þess að honum er talin hætta búin af hálfu annarra fanga.