CBS News greinir frá þessu. Yfirvöldum barst tilkynning um að skoti hefði verið hleypt af inn í bíl fyrir utan grunnskólann klukkan 12:59 að staðartíma, að sögn AP-fréttaveitunnar. Fleiri neyðarsímtöl bárust síðan innan úr skólanum.
Árásarmaðurinn var skotinn skömmu eftir að lögregla kom á vettvang, að sögn lögreglu. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort lögregla, almennur borgari eða árásarmaðurinn sjálfur hleypti af skotinu.
Silver Rail-grunnskólanum var lokað og fékk enginn að fara inn eða út úr byggingunni, að því er fram kemur í Facebook-færslu Bend-La Pine-skólaumdæmisins á Facebook.
Skólinn er í yfir 160 kílómetra fjarlægð suðaustur af Portland. Alls voru 459 nemendur skráðir þar á síðasta ári, samkvæmt menntamálayfirvöldum í Oregon. Skólinn er fyrir nemendur frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk.