Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, segir það sem rýting í hjarta sér að heyra fólk segja að það viti ekki lengur hvar það geti fundið sannleikann í ljósi þess að hún hefur í rúma fjóra áratugi staðið vaktina í blaðamennsku, ýmist á vettvangi hinna ýmsu stríða sem hafa geisað eða í fréttasettinu.
Amanpour er af írönskum og breskum ættum. Hún er margverðlaunaður blaðamaður sem hefur flutt fréttir frá átakasvæðum víða um heim. Hún starfar sem aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum með aðsetur í Lundúnum. Hún var stödd á Íslandi til að sækja friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar og settist niður með Kastljósi til að ræða stöðu og þróun blaðamennsku í nútímanum og lýsa þeim breytingum sem hafa orðið á umgjörð blaðamennsku. Hún rifjaði upp Bosníustríðið sem var fyrsta alvöru stríðið sem hún fjallaði um frá átakavettvangi en myndatökukonan hennar var skotin í andlitið þar sem hún var að störfum, hin nýsjálenska Margareth Moth. Breytingar á alþjóðasviðinu bar einnig á góma en alþjóðamál hafa ætíð verið hennar ær og kýr.
„Ég tel okkur lifa á mjög, mjög, óstöðugum tímum þar sem stofnanir hrynja og sömuleiðis traust til stofnana,“ segir Amanpour og bendir á að hópur áhrifafólks grafi vitandi vits undan tiltrú og trausti almennings til stofnana.
„Þetta er viljandi gert og alls ekki óvart. Margir popúlískir stjórnmálamenn vilja ekki að við vitum hvað er satt og rétt. Þeir vilja geta logið að fólki og bjagað raunveruleikann. Þeir vilja geta einblínt á átök í stað tækifæra, friðar og úrlausna.“
„Það þýðir að þeir hafa þurft – og þurfa enn – að gildisfella og eyðileggja alls konar stofnanir, hvort sem það eru pólitískar stofnanir, vísindastofnanir eða jafnvel fjölmiðlar.“
Amanpour lýsti þeim afleiðingum sem blasa við þegar áhrifafólk grefur undan fjölmiðlum.
„Þegar fólk segir að það viti ekki lengur hvar sannleikann sé að finna þá er það sem stór rýtingur í hjarta mér því ég hef í marga áratugi hætt lífi mínu, farið með samstarfsfélögum á einhverja hættulegustu staði sem til eru til þess að vera augu og eyru almennings á vettvangi. Þannig að þessi heimur sem við lifum í er að verða mjög erfiður.“