Á Alþingi talar nú Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir því að fella niður erfðafjárskatt, bara sisvona með engum fyrirvara og henda þar með 14 milljörðum af árlegum tekjum ríkissjóðs út. Málflutningur hennar byggist á tilfinningum fremur en rökum og verður að teljast í meira lagi væminn og: Verið er að skattleggja „syrgjandi fjölskyldur.“
Orðið á götunni: Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu