Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar og mun sitja áfram sem þingmaður utan þingflokks. Frá þessu var greint við upphaf þingfundar í dag þar sem forseti Alþingis las upp eftirfarandi bréf frá Jóni:„Með bréfi þessu tilkynni ég hér með að ég hef í dag sagt mig úr þingflokki Viðreisnar. Ég mun starfa á Alþingi sem þingmaður utan þingflokks í ófyrirséðan tíma. Ég mun áfram styðja ríkisstjórnina í hennar mikilvæga starfi til sjávar og sveita.“Jón steig svo sjálfur í pontu þar sem hann sagði:
Jón Gnarr segist bera skylda til að fylgja sannfæringu sinni - „Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg“