Ólga er á meðal íbúa í Vallahverfinu í Hafnarfirði eftir viðtal við Orra Björnsson, formanns bæjarráðs eftir hitafund um nýja smáhýsabyggð fyrir tímabundið verkafólk. Sagði Orri að áætlanirnar yrðu „stilltar af.“Eins og DV greindi frá 24. september síðastliðinn er mikil kergja á meðal íbúa á Völlunum vegna áætlana um uppbyggingu 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu í hverfinu. Um er að ræða samkomulag Hafnarfjarðarbæjar við vélagið Styrkás um 130 húseiningar sem ætlaðar eru fyrir starfsfólk í tímabundinni vinnu.
Mikil reiði meðal íbúa eftir ummæli Orra – „Við viljum þetta ALLS EKKI“