Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, skilaði inn umsögn við fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra fyrir komandi ár. Þar reifar hún rök sín fyrir því að fjölga þurfi um sjö stöðugildi í embættinu en áætlaður kostnaður við það er 154 milljónir króna.
„Embættið telur afar mikilvægt að hluti þeirra 200 m.kr. sem ríkisstjórnin leggur til vegna áframhaldandi fjölgunar lögreglumanna árið 2027 renni til embættisins,“ segir í umsögninni.
Um sé að ræða eitt stærsta umdæmi landsins utan höfuðborgarsvæðisins sem sjái um fjölbreytt verkefni og hefur þeim fjölgað á undanförnum árum. Til að mynda er lögð áhersla á að fjölga lögreglumönnum í vaktavinnu, styrkja rannsóknardeild og auka sýnilega löggæslu á landsbyggðinni en til þess þurfi fjármagn.
Þorgerður S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra boðaði fjölgun lögreglumanna árið 2025 um fimmtíu. 28 af fimmtíu stöðugildunum fóru til höfuðborgarsvæðisins og átti embætti Lögreglunnar á Norðurlandi eystra að fá sex stöðugildi.
Fimm stöðugildanna séu vegna verkefnaaukningar á starfssvæðinu. Taka þurfi ákvörðun um úthlutun fjár út frá raunverulegu verkefnaálagi og sé þörf fyrir frekari uppbyggingu löggæslu utan höfuðborgarsvæðisins. Hin tvö stöðugildin eiga að vera sérstaklega vegna verkefna sem tengjast ofbeldi barna gegn börnum, kynferðisbrotum gegn börnum og öðrum málum þar sem börn eru brotaþolar eða gerendur.
„Fjármögnun tveggja stöðugilda myndi: stytta málsmeðferðartíma, bæta þjónustu við börn og fjölskyldur, styrkja samstarf við barnavernd, skólayfirvöld og aðra hagaðila, efla forvarnir og snemmtæka íhlutun og auka sérþekkingu innan embættisins til lengri tíma.“
Vilja verulegan hluta
Þá fer embættið einnig fram á að fá verulegan hluta af 150 milljón króna tímabundnu framlagi vegna aðgerða gegn ofbeldi barna og hluta af 120 milljónum króna sem er ætlað til vegna landamærakerfa.
„Embættið fagnar því sérstaklega að gert sé ráð fyrir 150 m.kr. tímabundnu framlagi vegna aðgerða gegn ofbeldi barna. Á síðustu árum hefur orðið veruleg aukning í málum þar sem börn eru bæði brotaþolar og gerendur ofbeldisbrota,“ segir í umsögninni.
„Norðurland eystra er eitt af stærri lögregluumdæmum landsins og sinnir fjölmörgum málum sem falla undir þennan málaflokk. Embættið leggur því áherslu á að fá verulegan hluta þess fjár sem ætlað er til verkefnisins.“
Þar er minnst á verkefni líkt og Ábyrg saman auk þess að fjölga þurfi samfélagslöggæslu, styrkja forvarnir og snemmtæka íhlutun. Uppbygging og umsvif á Akureyrarflugvelli auk tíðra koma skemmtiferðaskipa leiði til þess að innleiða þurfi ný kerfi samkvæmt Schengen-regluverki. Það kalli á til að mynda aukinn mannafla, sérhæfða þjálfun og tæknibúnað.