Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir umfjöllun Kveiks um Ölgerðina sláandi.
Keppinautar Ölgerðarinnar segja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur þeirra. Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Ölgerðarinnar á drykkjarvörumarkaði. Til skoðunar er hvort fyrirtækið sé í markaðsráðandi stöðu og hvort það hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á slíkri stöðu.
Þar sem málið er enn í rannsókn segist atvinnuvegaráðherra ekki getað tjáð sig um það efnislega.
„En ég get sagt að svona mál sýnir mikilvægi þess að hér sé sterkt Samkeppniseftirlit og öflug neytendavernd. [...] Þetta er mikilvægt fyrir okkur. Við erum í þessu örsamfélagi þar sem þræðirnir liggja víða og samþjöppun fyrirtækja og hreyfingar – þær skipta svo miklu máli fyrir markaðinn í heild þannig að við þurfum að hafa þessa hluti í lagi.“
Vill innleiða skaðabótatilskipun
Hanna Katrín segir að rannsókn Samkeppniseftirlitsins þurfi að hafa sinn gang. Hún segir hlutverk stjórnvalda að búa svo um að samkeppniseftirlit og neytendavernd séu sterk, meðal annars svo hægt sé að fara vel ofan í mál sem þessi.
Hún segir að á þingmálaskrá séu mál sem miði að því að breyta samkeppnislögum til að efla eftirlit.
Þá ætlar hún að leggja fram mál næsta vetur til að innleiða skaðabótatilskipun. Hún miðar að því að tryggja þeim bætur sem verða fyrir tjóni vegna brota á samkeppnislögum. „Þetta hefur vantað og þetta skiptir mjög miklu máli fyrir fyrirtækið og fyrir almenning,“ segir Hanna Katrín.
Beðið hefur verið eftir því að skaðabótatilskipun Evrópusambandsins verði innleidd inn í EES-samninginn. „Ég er búin að missa þolinmæðina og mun næsta vetur leggja fram mál þess eðlis – hvort sem það er innleiðing á EES- eða ESB-reglugerðinni eða sem sjálfstætt mál.“